Guðjón Hafliðason (Skaftafelli)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 21. júní 2007 kl. 16:03 eftir Daniel (spjall | framlög) Útgáfa frá 21. júní 2007 kl. 16:03 eftir Daniel (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Guðjón Hafliðason fæddist 8. júlí 1889 að Fjósum í Mýrdal og lést 13. júlí 1963. Eiginkona Guðjóns var Halldóra Þórólfsdóttir. Áttu þau 11 börn; Ingólf, Trausta, Guðbjörgu, Auði, Harald, Rebekku, Elísabetu, Óskar, Önnu, Ester og Hafliða. Þau bjuggu í húsinu Skaftafell við Vestmannabraut og voru fjölskyldumeðlimir gjarnan kenndir við húsið.

Guðjón fór til Vestmannaeyja árið 1911 og gerðist háseti á Íslending hjá Friðriki Jónssyni og var með honum til ársins 1914. Þá byrjar Guðjón formennsku á Mýrdæling I og var með þann bát í fimmtán vertíðir. Eftir það kaupir hann Mýrdæling II og var með hann til ársins 1936. Eftir það hætti hann formennsku.



Heimildir

  • Sjómannablaðið Víkingur. Farmanna- og Fiskimannasamband Íslands.