„Geirdís Þórðardóttir (París)“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
(Ný síða: '''Geirdís Þórðardóttir''' vinnukona í Götu, París og víðar fæddist 1821 og lést 1. febrúar 1893.<br> Foreldrar hennar voru Þórður Sveinsson bóndi í Hv...)
 
m (Verndaði „Geirdís Þórðardóttir (París)“ (‎[edit=sysop] (ótiltekinn)))
(Enginn munur)

Útgáfa síðunnar 9. júlí 2014 kl. 18:42

Geirdís Þórðardóttir vinnukona í Götu, París og víðar fæddist 1821 og lést 1. febrúar 1893.
Foreldrar hennar voru Þórður Sveinsson bóndi í Hvammi og víðar u. Eyjafjöllum, f. 1782, d. 27. júlí 1893, og kona hans Ólöf Þorbjörnsdóttir húsfreyja, f. 1789, d. 16. apríl 1859.

Geirdís ólst upp með foreldrum sínum, var með ekkjunni móður sinni á Hjáleigusöndum u. Eyjafjöllum 1840, vinnukona á Tjörnum þar 1845.
Hún fluttist til Eyja 1848, var vinnukona á Ofanleiti 1849-1852.
Hún eignaðist barnið Einar 1853 og var í Götu 1853 með Einar son sinn hjá sér. 1860 var hún vinnukona í Þorlaugargerði með Einar hjá sér.
Geirdís giftist Þórði Árnasyni í Kastala 1863. Þau voru í Þórðarhjalli 1864 með drengina Einar og Þórð hjá sér. 1866 og 1867 voru þau í Háagarði með börnin, 1868 í Ólafshúsahjalli.
Þórður lést 1869 og hún var ekkja með Þórð son sinn í Dalahjalli á því ári, „sjálfrar sín“ var hún í Elínarhúsi 1870 með Þórð son sinn 7 ára hjá sér, en Einar var þá 17 ára léttadrengur í Frydendal.
Geirdís var niðursetningur á Kirkjubæ 1880 og „á sveit“ í Landakoti 1890, og þar lést hún 1893.

I. Barnsfaðir hennar var Einar Guðmundsson, síðar bóndi á Steinsstöðum, f. 26. mars 1834, hrapaði til bana 27. maí 1888. Hann átti börn með nokkrum konum.
Barn þeirra var
1. Einar Einarsson vinnumaður, f. 28. ágúst 1853, d. 9. ágúst 1888.

II. Maður Geirdísar, (20. nóvember 1863), var Þórður Árnason, þá ekkill í Kastala, f. 3. maí 1809, d. 7. september 1869.
Barn þeirra var:
2. Þórður Þórðarson, f. 4. september 1863 í Kastala, d. 10. september 1902 í Vesturheimi.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.is.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.
  • Vestur-Skaftfellingar 1703-1966. Björn Magnússon. Leiftur 1970-1973.