Garðar Gíslason (Héðinshöfða)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 29. apríl 2024 kl. 16:55 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 29. apríl 2024 kl. 16:55 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: '''Garðar Gíslason''' frá Héðinshöfða við Hásteinsveg 36, skósmiður fæddist 3. mars 1937.<br> Foreldrar hans voru Gísli Gíslason skipasmiður, f. 13. nóvember 1902, d. 24. desember 1972, og kona hans Ásdís Guðmundsdóttir húsfreyja, f. 10. ágúst 1913, d. 9. október 1995. Börn Ásdísar og Gísla:<br> 1. Unnur Gísladóttir (Héðinshöfða)|Unnur G...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Garðar Gíslason frá Héðinshöfða við Hásteinsveg 36, skósmiður fæddist 3. mars 1937.
Foreldrar hans voru Gísli Gíslason skipasmiður, f. 13. nóvember 1902, d. 24. desember 1972, og kona hans Ásdís Guðmundsdóttir húsfreyja, f. 10. ágúst 1913, d. 9. október 1995.

Börn Ásdísar og Gísla:
1. Unnur Gísladóttir húsfreyja á Akureyri og í Reykjavík, f. 10. ágúst 1934 í Reykjavík.
2. Haukur Gíslason vélstjóri í Eyjum, f. 29. október 1935 á Stóru-Heiði, d. 2. mars 1980.
3. Garðar Gíslason skósmiður í Kópavogi, f. 3. mars 1937 á Stóru-Heiði.
4. Guðrún Gísladóttir húsfreyja, f. 3. nóvember 1938 á Stóru-Heiði.
5. Sigríður Gísladóttir húsfreyja, f. 3. nóvember 1938 á Stóru-Heiði, d. 6. janúar 2024.
6. Gísli Gíslason bóndi á Geldingalæk á Rangárvöllum, f. 15. mars 1940 í Birtingarholti.
7. Þóra Gísladóttir, f. 6. ágúst 1941 í Héðinshöfða, d. 1. mars 1944.
8. Guðmundur Gíslason sjómaður, f. 2. nóvember 1942 í Héðinshöfða, d. 5. nóvember 1968.
9. Halldóra Gísladóttir, f. 20. júlí 1944 í Héðinshöfða, hrapaði til bana úr Hánni 17. maí 1954.
10. Sigurlaug Gísladóttir húsfreyja, f. 12. janúar 1946 í Héðinshöfða, d. 9. nóvember 2022.
11. Stefán Gíslason, f. 21. október 1948 í Héðinshöfða, d. af slysförum 22. apríl 1966.
12. Ólafur Gíslason verkstjóri, f. 12. nóvember 1949 í Héðinshöfða.
13. Kristrún Gísladóttir húsfreyja, f. 2. mars 1952 í Héðinshöfða.
14. Halldóra Gísladóttir húsfreyja, kennari, f. 30. september 1955 í Héðinshöfða.
15. Þóra Gísladóttir húsfreyja, f. 5. mars 1957 í Héðinshöfða.

Garðar var með foreldrum sínum í æsku.
Hann lærði skósmiði og vann við iðngreinina.
Þau Húnbjörg giftu sig 1960, eignuðust þrjú börn. Þau bjuggu í Kópavogi.

I. Kona Garðars, (8. október 1960), er Jórunn Húnbjörg Einarsdóttir frá Hafnarfirði, húsfreyja, f. 24. september 1941. Foreldrar hennar Einar Sigurðsson múrarameistari, f. 19. desember 1913, d. 24. janúar 1996, og Sigríður Jónsdóttir, f. 12. febrúar 1915, d. 27. desember 2010.
Börn þeirra:
1. Einar Þór Garðarsson, f. 26. nóvember 1958 í Rvk.
2. Halldór Garðarsson, f. 19. júní 1961 í Rvk.
3. Ásdís Garðarsdóttir, f. 29. september 1965 í Kópavogi.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.