„Gísli Lárusson“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ekkert breytingarágrip
Ekkert breytingarágrip
 
(18 millibreytingar ekki sýndar frá 4 notendum)
The content of the old revision is missing or corrupted.
Lína 1: Lína 1:
[[Mynd:KG-mannamyndir 2972.jpg|thumb|300 px|Gísli Lárusson]]
'''Gísli Lárusson''' fæddist 16. febrúar 1865 á [[Kornhóll|Kornhóli]] í Vestmannaeyjum og lést 27. september 1935. Hann var bóndi, gullsmiður og útgerðarmaður í [[Stakkagerði]]


Gísli nam gullsmíði hjá Ólafi Sveinssyni í Reykjavík og lauk sveinsprófi 1885.  Hann starfaði sem gullsmiður og úrsmiður í Eyjum.<br>
Jafnframt var hann bóndi í [[Stakkagerði]], formaður á áraskipinu [[Friður|Frið]] og fróðleiksmaður. Hann var fjölfróður um [[Saga|sögu]] byggðarlagsins og sérstaklega um [[Sjávardýr|dýralífið í sjónum]] kringum Eyjarnar og [[Fuglar|fuglalífið]] í björgum þeirra.  Gísli tók saman mikið örnefnasafn sem hefur verið varðveitt í handritasafni Fornleifafélagsins og hjá Örnefnastofnun Íslands.  Þetta örnefnasafn hans var notað m.a. af [[Þorkell Jóhannesson|Þorkeli Jóhannessyni]] sem tók saman rit um Örnefni í Vestmannaeyjum.  Hluti Örnefnasafns Gísla birtist einnig hér víða á þessum vef.
Hann átti sæti í hreppsnefnd og sýslunefnd, var í stjórn ýmissa félaga í Vestmannaeyjum s.s. [[Ísfélag Vestmannaeyja|Ísfélags]], [[Björgunarfélag Vestmannaeyja|Björgunarfélags]], togarafélagsins Draupnis og kaupfélagsins Herjólfs.  Hann var framkvæmdastjóri kaupfélagsins Bjarma í 10 ár.  Hann var einn af stofnendum [[Framfarafélag Vestmannaeyja|Framfarafélags Vestmannaeyja]]
Gísli var meðlimur [[Góðtemplarar|Góðtemplarareglunnar]] í 50 ár.
===Eiginkona og afkomendur===
Eiginkona hans var [[Jóhanna Sigríður Árnadóttir]], dóttir [[Árni Diðriksson|Árna Diðrikssonar]] í Stakkagerði og konu hans, [[Ásdís Jónsdóttir (Stakkagerði)|Ásdísar Jónsdóttur]] frá Djúpavogi. Jóhanna var forstöðukona [[Kvenfélagið Líkn|Kvenfélagsins Líknar]].
Börn Gísla og Jóhönnu sem komust upp voru: [[Árni Gíslason|Árni]] kaupmaður, [[Georg Gíslason|Georg]] kaupmaður, [[Theódóra Gísladóttir|Theódóra]], flutti til Bandaríkjanna en lést 1920 úr spönsku veikinni, [[Lárus Gíslason|Lárus]] og [[Kristín Gísladóttir|Kristín]], kona Bjarna Sighvatssonar bankaritara í Reykjavík og um tíma bankastjóra í Vestmannaeyjum.
{{Heimildir|
* Páll Eggert Ólason. ''Íslenskar æviskrár, frá landnámstímum til ársloka 1940'', V. bindi. Reykjavík, Hið íslenska bókmenntafélag, 1952.
* Ýmsir. ''Gullsmiðatal 1991'',  Reykjavík, Félag íslenskra gullsmiða, 1991.
* [[Þorsteinn Víglundsson|Þorsteinn Þ. Víglundsson]]. ''[[Blik]], Ársrit Vestmannaeyja 1972'',  Vestmannaeyjum, Þorsteinn Þ. Víglundsson, 1972.
}}
[[Flokkur:Útgerðarmenn]]
[[Flokkur:Kaupmenn]]
[[Flokkur:Bændur]]
[[Flokkur:Fólk fætt á 19. öld]]
[[Flokkur:Fólk dáið á 20. öld]]

Núverandi breyting frá og með 12. október 2021 kl. 20:05

Gísli Lárusson

Gísli Lárusson fæddist 16. febrúar 1865 á Kornhóli í Vestmannaeyjum og lést 27. september 1935. Hann var bóndi, gullsmiður og útgerðarmaður í Stakkagerði

Gísli nam gullsmíði hjá Ólafi Sveinssyni í Reykjavík og lauk sveinsprófi 1885. Hann starfaði sem gullsmiður og úrsmiður í Eyjum.
Jafnframt var hann bóndi í Stakkagerði, formaður á áraskipinu Frið og fróðleiksmaður. Hann var fjölfróður um sögu byggðarlagsins og sérstaklega um dýralífið í sjónum kringum Eyjarnar og fuglalífið í björgum þeirra. Gísli tók saman mikið örnefnasafn sem hefur verið varðveitt í handritasafni Fornleifafélagsins og hjá Örnefnastofnun Íslands. Þetta örnefnasafn hans var notað m.a. af Þorkeli Jóhannessyni sem tók saman rit um Örnefni í Vestmannaeyjum. Hluti Örnefnasafns Gísla birtist einnig hér víða á þessum vef.

Hann átti sæti í hreppsnefnd og sýslunefnd, var í stjórn ýmissa félaga í Vestmannaeyjum s.s. Ísfélags, Björgunarfélags, togarafélagsins Draupnis og kaupfélagsins Herjólfs. Hann var framkvæmdastjóri kaupfélagsins Bjarma í 10 ár. Hann var einn af stofnendum Framfarafélags Vestmannaeyja

Gísli var meðlimur Góðtemplarareglunnar í 50 ár.

Eiginkona og afkomendur

Eiginkona hans var Jóhanna Sigríður Árnadóttir, dóttir Árna Diðrikssonar í Stakkagerði og konu hans, Ásdísar Jónsdóttur frá Djúpavogi. Jóhanna var forstöðukona Kvenfélagsins Líknar.

Börn Gísla og Jóhönnu sem komust upp voru: Árni kaupmaður, Georg kaupmaður, Theódóra, flutti til Bandaríkjanna en lést 1920 úr spönsku veikinni, Lárus og Kristín, kona Bjarna Sighvatssonar bankaritara í Reykjavík og um tíma bankastjóra í Vestmannaeyjum.



Heimildir

  • Páll Eggert Ólason. Íslenskar æviskrár, frá landnámstímum til ársloka 1940, V. bindi. Reykjavík, Hið íslenska bókmenntafélag, 1952.
  • Ýmsir. Gullsmiðatal 1991, Reykjavík, Félag íslenskra gullsmiða, 1991.
  • Þorsteinn Þ. Víglundsson. Blik, Ársrit Vestmannaeyja 1972, Vestmannaeyjum, Þorsteinn Þ. Víglundsson, 1972.