„Friðrika Sighvatsdóttir (Vilborgarstöðum)“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ekkert breytingarágrip
m (Verndaði „Friðrika Sighvatsdóttir (Vilborgarstöðum)“ (‎[edit=sysop] (ótiltekinn)))
(Enginn munur)

Útgáfa síðunnar 25. apríl 2014 kl. 11:00

Friðrika Sighvatsdóttir húsfreyja á Vilborgarstöðum fæddist 1858, var á lífi 1901.
Foreldrar hennar voru Sighvatur Sigurðsson bóndi og formaður á Vilborgarstöðum, f. 10. júlí 1835, d. 8. júlí 1874 og kona hans Björg Árnadóttir húsfreyja, f. 3. nóvember 1830, d. 4. júní 1915.

Friðrika var heitbundin Þorsteini Björnssyni lausamanni á Vilborgarstöðum, er hann lést 1883.
Þau Vigfús giftust 1886. Hún var fyrri kona hans.
Friðrika var húsfreyja á Vilborgarstöðum 1890 og 1901.

I. Unnusti Friðriku var Þorsteinn Björnsson, f. 1853 í Holti í Mýrdal, d. 9. mars 1883 á Vilborgarstöðum.
Barn þeirra var:
Sigríður Ólöf húsfreyja á Jaðri og Litlhólum, f. 29. janúar 1880, d. 17. júní 1947, kona Matthíasar Finnbogasonar vélfræðings.
II. Maður Friðriku var, (1886), Vigfús P. Scheving útvegsbóndi á Vilborgarstöðum, f. 5. september 1852, d. 23. desember 1939.
Börn Friðriku og Vigfúsar:
2. Sigfús Scheving, f. 2. maí 1886, d. 3. maí 1964.
3. Vilhjálmur Ágúst Scheving, f. 5. ágúst 1888, d. 29. mars 1913.
4. Pálína Kristjana Scheving, f. 29. nóvember 1890, d. 27. maí 1982.
5. Jóhann Sveinn Scheving, f. 5. desember 1893, d. 26. janúar 1957.
6. Sigríður Scheving, f. 1901.


Heimildir