„Engilbert Engilbertsson“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
(Ný síða: '''Engilbert Engilbertsson''' verslunarmaður í Jómsborg fæddist 1850 í Syðstu-Mörk u. Eyjafjöllum og lést 21. september 1896.<br> Foreldrar hans voru Engilbert Ólafsson...)
 
m (Verndaði „Engilbert Engilbertsson“ (‎[edit=sysop] (ótiltekinn)))
(Enginn munur)

Útgáfa síðunnar 17. júlí 2014 kl. 14:35

Engilbert Engilbertsson verslunarmaður í Jómsborg fæddist 1850 í Syðstu-Mörk u. Eyjafjöllum og lést 21. september 1896.
Foreldrar hans voru Engilbert Ólafsson bóndi, f. 28. febrúar 1806, d. 7. júní 1873 og kona hans Guðfinna Gísladóttir húsfreyja, f. 15. ágúst 1807, d. 11. nóvember 1894.

Bróðir Engilberts var Gísli Engilbertsson verslunarstjóri, f. 14. ágúst 1834, d. 8. ágúst 1919.

Engilbert var með foreldrum sínum í Syðst-Mörk 1860 og 1870.
Hann fluttist frá Dalssókn að Juliushaab 1872 og var þar verslunarþjónn, búandi í Jómsborg 1880 og 1890.
Hann lést 1896.

Kona hans, (18. október 1876), var Jórunn Jónsdóttir Austmann frá Ofanleiti, f. 1821, d. 27. október 1906.
Þau voru barnlaus, en fóstruðu:
1. Kristínu Árnadóttur, dóttur Margrétar Engilbertsdóttur, systur Engilberts, f. 17. september 1878, d. 20. september 1926. Kristín varð húsfreyja á Brekku, kona Jóhanns Jónssonar.
Áður hafði Jórunn fóstrað 2 börn. Þau voru:
2. Gísli Gíslason Bjarnasen trésmiður og beykir, f. 27. júlí 1858 í Landeyjum, d. 6. maí 1897. Hann var hjá Jórunni og Jóni, fyrri manni hennar frá tveggja ára aldri.
Hann varð faðir Jóns Gíslasonar í Ármótum.
3. Maria Maren Christense Tranberg, f. 7. júní 1857, d. 1934, dóttir Lars Tranberg og Gunnhildar Oddsdóttur húsfreyju í London. Hún fluttist til Chicago.


Heimildir