Elísabet Eiríksdóttir (Gjábakka)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 18. apríl 2015 kl. 12:07 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 18. apríl 2015 kl. 12:07 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Elísabet Eiríksdóttir húsfreyja frá Gjábakka fæddist 17. júní 1849 á Kirkjubæ og lést 27. ágúst 1937 í Utah.
Foreldrar hennar voru Eiríkur Hansson sjávarbóndi á Gjábakka, f. 3. ágúst 1815, drukknaði af Blíð 26. febrúar 1869, og kona hans Kristín Jónsdóttir húsfreyja, f. 1811 á Eystri-Klasabarða í V-Landeyjum, d. 14. október 1883.

Elísabet Eiríksdóttir.

Elísabet var með foreldrum sínum meðan beggja naut við. Faðir hennar drukknaði 1869.
Hún var vinnukona 1870 hjá Veigalín systur sinni á Gjábakka, vinnukona í Juliushaab 1871-1874.
Hún fór frá Juliushaab 1874 og réðst bústýra að Ljótarstöðum í Landeyjum. Í Landeyjum ól hún barn, sem hún eignaðist með Engilbert Engilbertssyni í Jómsborg, f. 7. desember 1850, d. 21. september 1896.
Barnið var sent Engilbert 1876, en það dó í júlí á því ári.

Þau Ísleikur og Elísabet voru vinnufólk í Núpakoti u. Eyjafjöllum 1880, í Mýrdal 1882, hann á Felli, en hún á Sólheimum. Þau fluttust úr Mýrdal að Kornhól 1882 með börnin Jón og Karel.
Jón dó úr barnaveiki 1882, Karel og Kjartan 1886.
Þau bjuggu í Kornhól 1883-1889 og fluttust þaðan til Utah 1890 með börnin Sigurjón og Karólínu Ingibjörgu.

I. Barnsfaðir Elísabetar var Engilbert Engilbertsson í Jómsborg, f. 7. desember 1850, d. 21. september 1896.
Barn þeirra var
1. Sigurður Engilbertsson, f. 13. desember 1874 í A-Landeyjum, d. 18. júlí 1876 í Jómsborg.

II. Maður Elísabetar var Ísleikur Ólafsson bóndi, f. 15. júlí 1850, d. 17. desmber 1923.
Börn þeirra hér:
2. Jón Ísleiksson, f. 1880, d. 13. júní 1882 úr barnaveiki.
3. Karel Ísleiksson (einnig ritað Karl), f. 26. júlí 1882 á Sólheimum í Mýrdal, d. 20. júní 1886 úr barnaveiki.
4. Sigurjón Ísleiksson, f. 18. september 1884, d. 23. júní 1916.
5. Kjartan Ísleiksson, f. 7. júlí 1886, d. 15. júlí 1886.
6. Karólína Ingibjörg Ísleiksdóttir, f. 15. september 1887, d. 16. febrúar 1981.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.
  • Vesturfaraskrá 1870-1914. Júníus H. Kristinsson. Sagnfræðistofnun Háskóla Íslands 1983.