„Eiríkur Hjálmarsson (Vegamótum)“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ekkert breytingarágrip
Ekkert breytingarágrip
Lína 18: Lína 18:
2. [[Anna Eiríksdóttir|Anna]].

2. [[Anna Eiríksdóttir|Anna]].

3. [[Haraldur Eiríksson|Haraldur]].

3. [[Haraldur Eiríksson|Haraldur]].

4. [[Ágúst Eiríksson (Nýja-Kastala)|Ágúst]].

4. [[Ágúst Vilhjálmur Eiríksson (Vegamótum|Ágúst]].

5. [[Hjálmar Eiríksson|Hjálmar]].
5. [[Hjálmar Eiríksson|Hjálmar]].

Útgáfa síðunnar 10. nóvember 2017 kl. 22:34

Eiríkur og Sigurbjörg.

Eiríkur Hjálmarsson var barnakennari í Vestmannaeyjum á árunum 1895-1928. Hann fæddist að Ketilsstöðum í Mýrdal 11. ágúst 1856.
Faðir hans var Hjálmar bóndi á Ketilsstöðum í Mýrdal og í Efri-Rotum undir Eyjafjöllum, f. 17. júlí 1829, d. 31. ágúst 1903, Eiríksson bónda á Ketilsstöðum, f. 1795 á Leirum u. Eyjafjöllum, Jónssonar bónda á Hrútafelli þar, f. 1769 í Pétursey í Mýrdal, d. 30. apríl 1834 á Hrútafelli, Eiríkssonar, og konu Jóns á Hrútafelli, Sigríðar húsfreyju, f. 1769 á Raufarfelli þar, Bjarnadóttur.

Móðir Hjálmars á Ketilsstöðum og síðari kona Eiríks bónda þar var Elín húsfreyja, f. 23. júlí 1801 á Brekkum í Mýrdal, d. 6. janúar 1883 á Ketilsstöðum, Sveinsdóttir bónda, síðast í Hryggjum í Álftaveri, f. 1758, d. 20. október 1838 á Skeiðflöt í Mýrdal, Eyjólfssonar, og konu Sveins í Hryggjum, Guðrúnar húsfreyju, f. 1760 í Kálfholti í Holtum, d. 7. júlí 1834 á Skeiðflöt, Þórðardóttur prests í Kálfholti Sveinssonar, og konu sr. Þórðar, Guðfinnu Þorsteinsdóttur, síðar á Felli í Mýrdal.

Móðir Eiríks og fyrri kona Hjálmars á Ketilsstöðum var Guðrún húsfreyja, f. 1823 á Flögu í Skaftártungu, d. 31. ágúst 1860 á Fögruvöllum, Jónsdóttir bónda á Litlu-Heiði í Mýrdal, f. 1797 á Flögu í Skaftártungu, d. 28. nóvember 1847 í snjóflóði, Þorlákssonar bónda á Flögu 1796-1824, síðan vinnumanns og smiðs víða, f. 17. febrúar 1776 á Herjólfsstöðum í Álftaveri, d. 23. september 1839 á Ljótarstöðum í Skaftártungu, Jónssonar, og konu Þorláks, Elínar húsfreyju, f. 1771 á Ytri-Ásum í Skaftártungu, d. 21. september 1844 á Litlu-Heiði í Mýrdal, Loftsdóttur.

Móðir Guðrúnar húsfreyju á Ketilsstöðum og fyrri kona Jóns Þorlákssonar var Þorgerður húsfreyja, f. 1798 á Ytri-Ásum, d. 28. febrúar 1827 á Svartanúpi í Skaftártungu, Bjarnadóttir bónda, síðast á Borgarfelli í Skaftártungu, f. 1755 á Ytra-Hrauni í Landbroti, d. 27. júlí 1821 á Borgarfelli, Gunnsteinssonar, og konu Bjarna á Borgarfelli, Guðrúnar húsfreyju, f. 1754 á Hunkubökkum á Síðu, d. 25. febrúar 1827 á Borgarfelli, Steinsdóttur.

Snemma missti hann móður sína. Eiríkur fékk ekki mikla bóklega kennslu framan af en las það sem hann fékk lánað og komst í. Til 25 ára aldurs bjó hann hjá föður sínum og lærði á næsta bæ söðlasmíði. Flutti hann þá í Straumfjörð á Mýrum og fann þar eiginkonu sína. Fluttu þau árið 1885 til Vestmannaeyja. Var hann hér við verslunarstörf á Tanganum. Árið 1890 stofnaði hann sinn eigin barnaskóla og rak hann í fimm ár, eða þar til hann var ráðinn við Barnaskóla Vestmannaeyja þegar deildum við skólann var fjölgað. Hann kenndi mest megnis yngri deildinni og hélt góðum aga jafnframt því að vera ljúfur.

Kona Eiríks hét Sigurbjörg R. Pétursdóttir og giftust þau árið 1888. Keyptu þau tómthúsið Nýja-Kastala. Hann nefndi hús sitt Vegamót og hét það þar til húsið fór undir hraun í gosinu 1973. Þau eignuðust 5 börn. Eiríkur lést 5. apríl árið 1931, 74 ára að aldri. Sigurbjörg, kona hans, lést árið 1946, 82 ára að aldri.

Börn þeirra voru:
1. Vilhjálmur, f. 6. júlí 1889, d. 11. mars 1891.
2. Anna.
3. Haraldur.
4. Ágúst.
5. Hjálmar.

Myndir

Heimildir