Brennihóll

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 19. janúar 2007 kl. 18:35 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 19. janúar 2007 kl. 18:35 eftir Viglundur (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Brennihóll
eða Þerrihóll var hóll landnorður af Vilpu og austur af Austari Vilborgarstöðum. Var hann við Austurveginn norðanverðan, nær Vilborgarstöðum en Vallartúni. Á honum var kynt bál („kyntur viti”), þegar póstur fór frá Eyjum til lands og menn áttu að vera viðbúnir í Sandi til að taka á móti bátnum. Við Bakka í Landeyjum var einnig kynt bál, er póstur fór til Eyja. Af Þerrihólsnafninu má ætla, að þar hafi verið þurrkaður þvottur („breitt á blæ”).


Heimildir