Anna Petrea Thomsen (Godthaab)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 10. maí 2013 kl. 14:55 eftir Víglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 10. maí 2013 kl. 14:55 eftir Víglundur (spjall | framlög) (Ný síða: '''Anna Petrea Thomsen''' húsfreyja (Anna Jesdóttir Gíslason á mt. 1910), fæddist 9. maí 1871 í Eyjum og lést 3. maí 1937.<br> Faðir hennar var Jes Nicolai Thomsen versluna...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Anna Petrea Thomsen húsfreyja (Anna Jesdóttir Gíslason á mt. 1910), fæddist 9. maí 1871 í Eyjum og lést 3. maí 1937.
Faðir hennar var Jes Nicolai Thomsen verslunarstjóri í Godthaabsverslun, f. 7. nóvember 1840 í Sauðlauksdalssókn í Barð., d. 30. janúar 1919, William Thomsens kaupmanns á Vatneyri við Patreksfjörð, f. 18. júní 1819 í Haderslev, d. 22. júní 1853, og konu hans, Önnu Margrétar Knudsen, f. 28. desember 1815, d. 4. nóvember 1884, dóttur Margrethe Andreu Hölter Knudsen, f. 4. janúar 1781, d. 3. maí 1849.
Móðir Önnu Petreu Thomsen var Anna Karólína Kristjánsdóttir Thomsen, f. 2. september 1835, d. 25. febrúar 1920 í Eyjum, fósturbarn hjá Morten Eriksen og Johanne Friðriksdóttur, (síðar maddömu Roed), í Sjólyst 1845.
Anna Petrea var hálfsystir Guðmundar Jessonar í Lambhaga, f. 13. nóvember 1867, d. 19. apríl 1931.

Anna var með foreldrum sínum í Godthaab 1890. Hún var húsfreyja í Reykjavík 1910.

Maður Önnu Thomsen, (1894), var Friðrik Gísli Gíslason ljósmyndari, fæddur 11. maí 1870, dáinn 15. janúar 1906.
Börn þeirra voru:
1. Jóhanna, f. 4. júlí 1895 í Reykjavík, d. 20. júní 1979.
2. Olga, f. 14. júní 1898 í Reykjavík, d. 30. júlí 1944.
3. Soffía, f. 22. júlí 1900 í Reykjavík, d. 12. ágúst 1968.


Heimildir