„Þorlaugargerði vestra“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ekkert breytingarágrip
 
Ekkert breytingarágrip
 
(2 millibreytingar ekki sýndar frá 1 notanda)
Lína 1: Lína 1:
Húsið '''Þorlaugargerði vestra''' stóð utan byggðar.
Húsið '''Þorlaugargerði vestra''' er utan byggðar, fyrir ofan hraun. Þorlaugargerðisjarðirnar voru tvær og aðgreindar sem ''eystra'' og ''vestra.'' Báðar þóttu jarðirnar ágætar bújarðir á vestmanneyskan mælikvarða og er í heimildum greint frá ábúð á þeim fyrir árið 1500.
 
Síðasti ábúandi í Þorlaugargerði vestra var Húnvetningurinn [[Páll H. Árnason]] frá Geitaskarði, er flutti til Eyja rétt eftir miðja síðustu öld, ásamt konu sinni [[Guðrún Aradóttir|Guðrúnu Aradóttur]] og börnum þeirra. Páll rak allstórt kúabú á jörðinni, stóð í nýrækt og endurbætti húsakostinn.
 
*''Páll var mikill bóndi en einnig víðlesinn og fróður og ágætlega skáldmæltur.  Hann lenti í útistöðum við [[Einar J. Gíslason]] í [[Betel]] vegna trúmála og var upphaf þess það að Einar sagðist hafa séð Pál vera að bera skít á tún á hvítasunnudag þegar flestir sannkristnir menn hefðu verið í kirkju.  Páll svaraði þessu svo eftirminnilega að ekki var á það framar minnst.  Hann sagði:  -Hvort finnst þér eðlilegra að ég sé að vinna í skít og hugsa um guð eða að ég sé í kirkju að hugsa um skít?''
 
 
[[Bjarni Sighvatsson frá Ási|Bjarni Sighvatsson]] frá [[Ás]]i keypti Þorlaugargerði vestra á níunda áratug síðustu aldar og hefur haldið þar bæði sauðfé og hross.


[[Flokkur:Hús]]
[[Flokkur:Hús]]
[[Flokkur:Ofanbyggjarar]]

Núverandi breyting frá og með 29. júní 2007 kl. 11:52

Húsið Þorlaugargerði vestra er utan byggðar, fyrir ofan hraun. Þorlaugargerðisjarðirnar voru tvær og aðgreindar sem eystra og vestra. Báðar þóttu jarðirnar ágætar bújarðir á vestmanneyskan mælikvarða og er í heimildum greint frá ábúð á þeim fyrir árið 1500.

Síðasti ábúandi í Þorlaugargerði vestra var Húnvetningurinn Páll H. Árnason frá Geitaskarði, er flutti til Eyja rétt eftir miðja síðustu öld, ásamt konu sinni Guðrúnu Aradóttur og börnum þeirra. Páll rak allstórt kúabú á jörðinni, stóð í nýrækt og endurbætti húsakostinn.

  • Páll var mikill bóndi en einnig víðlesinn og fróður og ágætlega skáldmæltur. Hann lenti í útistöðum við Einar J. Gíslason í Betel vegna trúmála og var upphaf þess það að Einar sagðist hafa séð Pál vera að bera skít á tún á hvítasunnudag þegar flestir sannkristnir menn hefðu verið í kirkju. Páll svaraði þessu svo eftirminnilega að ekki var á það framar minnst. Hann sagði: -Hvort finnst þér eðlilegra að ég sé að vinna í skít og hugsa um guð eða að ég sé í kirkju að hugsa um skít?


Bjarni Sighvatsson frá Ási keypti Þorlaugargerði vestra á níunda áratug síðustu aldar og hefur haldið þar bæði sauðfé og hross.