„Þorgeir Jóelsson“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ekkert breytingarágrip
Ekkert breytingarágrip
Lína 31: Lína 31:
* Óskar Kárason. ''Formannavísur II''. Vestmannaeyjum, 1956. }}
* Óskar Kárason. ''Formannavísur II''. Vestmannaeyjum, 1956. }}

=Frekari umfjöllun=
Önnur umfjöllun á Heimaslóð: [[Ritverk Árna Árnasonar/Þorgeir Jóelsson]].
'''Þorgeir Jóelsson''' formaður á [[Sælundur|Sælundi]], fæddist 15. júní 1903 og lést 13. febrúar 1984.

Foreldrar hans voru [[Jóel Eyjólfsson]], f. 3. nóvember 1878, d. 28. desember 1944, og fyrri kona hans [[Þórdís Guðmundsdóttir (Sælundi)|Þórdís Guðmundsdóttir]] húsfreyja, f. 29. ágúst 1887, d. 4. júní 1908

Albróðir Þorgeirs var [[Guðmundur Jóelsson|Guðmundur Eyjólfur]], f. 5. janúar 1907, d. 14. september 1965.

Þorgeir ólst upp hjá ömmusystur sinni [[Þorgerður Erlendsdóttir (Fögruvöllum)|Þorgerði Erlendsdóttur]] húsfreyju á [[Fögruvellir|Fögruvöllum]], og manni hennar [[Sigurður Vigfússon (Fögruvöllum)|Sigurði Vigfússyni]].

Þorgeir átti tvær konur.

I. Fyrri kona hans var [[Guðfinna Lárusdóttir (Sælundi)|Guðfinna Lárusdóttir]] húsfreyja,  f. 12. júlí 1897 í Álftagróf í Mýrdal, d. 30. nóvember 1956.

Börn þeirra Þorgeirs og Guðfinnu voru:

1. [[Arnlaug Lára Þorgeirsdóttir (Sælundi)|Arnlaug ''Lára'']], f. 10. ágúst 1932.

2. [[Þorgerður Sigríður Þorgeirsdóttir (Sælundi)|Þorgerður Sigríður]], f. 14. ágúst 1943.

II. síðari kona Þorgeirs (1959) var

[[Margrét Pétursdóttir (Varmadal)|Margrét Pétursdóttir]] húsfreyja að [[Stuðlaberg]]i (áður [[Oddgeirshólar]]), en áður húsfreyja í [[Varmidalur|Varmadal]], f. 3. maí 1911 að Vallanesi á Héraði, d. 24. ágúst 2002.

Þorgeir var síðari maður hennar.

'''''Úr fórum [[Árni Árnason (símritari)|Árna Árnasonar]] símritara:
Bjargveiðimannatal.'''''

Þorgeir var meðalmaður að hæð, jarpdökk- og hrokkinhærður, nokkuð þrekinn, fremur stórt og karlmannlegt andlit, meðalfrítt. Hann er mjög hæglátur maður í allri umgengni, tilbaka og feiminn, fámáll og orðvar. Fremur er hann daufur í skapi, en í sínum hóp ræðinn, fróður vel, sérstaklega um sjó og land Eyjanna og góður heim að sækja.

Hann hefir tekið virkan þátt í fuglaveiðum alls konar og þá helst sem bátslegumaður, þótt göngur hafi hann tekið stundum og verið við veiðar.

Lífsstarf Þorgeirs er annars sjómennska frá fyrstu tíð og er hann formaður ágætur, mjög aflasæll og sækinn, en aðgætinn og forsjáll. Er hann afhaldinn af hásetum sínum og hefir sömu háseta ár eftir ár.

{{Árni Árnason}}
{{Heimildir|
*Samantekt: [[Víglundur Þór Þorsteinsson]].
*Eyjar og úteyjalíf – Úrval verka [[Árni Árnason (símritari)|Árna Árnasonar]] símritara frá [[Grund]]. Sögufélag Vestmannaeyja í samstarfi við Safnahús Vestmannaeyja 2012.
*Garður.is.
*Heimaslóð.
*Íslendingabók.is.}}

= Myndir =
= Myndir =

Útgáfa síðunnar 15. ágúst 2013 kl. 15:04

Þorgeir

Þorgeir Jóelsson, Fögruvöllum og Sælundi, var fæddur á Vesturhúsum í Vestmannaeyjum 15. júní 1903 og lést 13. febrúar 1984. Foreldrar hans voru Jóel Eyjólfsson og Þórdís Guðmundsdóttir.

Þorgeir hóf ungur sjómennsku en formennsku byrjaði Þorgeir árið 1925 með Lunda I. Eftir þá vertíð kaupir Þorgeir ásamt fleiri mönnum Lunda II og var formaður með hann yfir 30 vertíðir. Einnig var Þorgeir formaður á Hörpu, Hrafni og Von II.

Loftur Guðmundsson samdi eitt sinn formannsvísu um Þorgeir:

Fyrir þrótt sinn þor og fjör
Þorgeir orðstírs nýtur,
er Lundinn hlaðinn heim að vör
hvíta kólgu brýtur.

Óskar Kárason samdi einnig formannavísu um Þorgeir:

Þéttur herjar þorska slóð
Þorgeir Sæs- á lundi,
happa stór þá leggur lóð
lagnar út á sundi.

Óskar samdi seinna aðra vísu um hann:

Lundann á sævar-sundin,
setur Þorgeir og hvetur,
þegn Jóels það má fregna,
þolinn er sjós í skoli.
Sælundar sinn á bæinn
sæg fiska aflar hægur.
Sækinn er fyrður frækinn,
fullhuginn hamra lullar.

Heimildir

• Sjómannablaðið Víkingur. Farmanna- og Fiskimannasamband Íslands.
• Óskar Kárason. Formannavísur. Vestmannaeyjum, 1950.
• Óskar Kárason. Formannavísur II. Vestmannaeyjum, 1956.

Önnur umfjöllun á Heimaslóð: Ritverk Árna Árnasonar/Þorgeir Jóelsson.

Myndir