Þóranna Ingimundardóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 20. október 2006 kl. 10:49 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 20. október 2006 kl. 10:49 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Þóranna Ingimundardóttir ljósmóðir fæddist á Gjábakka 16. janúar 1859 og dó í Eyjum 14. marz 1929. Foreldrar hennar voru Ingimundur Jónsson útvegsbóndi, formaður og hreppstjóri á Gjábakka og kona hans Margrét Jónsdóttir.
Þóranna varð vinnukona hjá Sigurði Sveinssyni í Nýborg 1881. Hún lærði ljósmóðurfræði í Reykjavík 1885 og lauk prófi 15. des. 1885. Var hún skipuð ljósmóðir í Eyjum frá 3. febrúar 1886 og gegndi því starfi til ársins 1924. Frá aldamótum 1900 til starfsloka 1924 var Guðrún Magnúsdóttir ljósmóðir henni til aðstoðar.
Þóranna giftist Sigurði Sveinssyni árið 1891.
Börn þeirra Sigurðar voru: Þórunn Anna Jóhanna, f. 4. júní 1884, drukknaði af Björgólfi við Klettsnef 16. maí 1901; Jónína Steinunn Sigurðardóttir húsmóðir á Háeyri, f. 15. nóv. 1890, d. 31. mars 1970; Sigmundur, f. 13. sept. 1895, d. 28. ágúst 1896. Auk þess ólst upp hjá henni að miklu leyti dóttir Sigurðar með Sigríði Sighvatsdóttur frá Vilborgarstöðum: Júlíana Guðríður Ingveldur (Júlla á Búastöðum).


Heimildir