Þóranna Ingimundardóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 11. október 2006 kl. 10:57 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 11. október 2006 kl. 10:57 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Þóranna Ingimundardóttir ljósmóðir fæddist á Gjábakka 16. janúar 1859 og dó í Eyjum 14. mars 1929. Foreldrar hennar voru Ingimundur Jónsson útvegsbóndi, formaður og hreppstjóri á Gjábakka og kona hans Margrét Jónsdóttir.

Þóranna varð vinnukona hjá Sigurði Sveinssyni í Nýborg 1881. Hún lærði ljósmóðurfræði í Reykjavík 1885 og lauk prófi 15. des. 1885. Var hún skipuð ljósmóðir í Eyjum frá 3. febrúar 1886 og gegndi því starfi til ársins 1924.

Þóranna giftist Sigurði Sveinssyni árið 1891.

Börn þeirra Sigurðar voru: Þórunn Anna Jóhanna, f. 4. júní 1884, drukknaði af Björgólfi við Klettsnef 16. maí 1901; Jónína Steinunn húsmóðir á Háeyri, f. 15. nóv. 1890, d. 31. mars 1970; Sigmundur, f. 13. sept. 1895, d. 28. ágúst 1896. Auk þess ólst upp hjá henni að miklu leyti dóttir Sigurðar með Sigríði Sighvatsdóttur frá Vilborgarstöðum: Júlíana Guðríður Ingveldur (Júlla á Búastöðum).


Heimildir