Þóra Jónsdóttir (Stakkagerði)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 12. apríl 2013 kl. 18:30 eftir Víglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 12. apríl 2013 kl. 18:30 eftir Víglundur (spjall | framlög) (Ný síða: '''Þóra Jónsdóttir''' húsfreyja í Ottahúsi. Stakkagerði og Kirkjubæ fæddist 1808 á Hrútafelli u. Eyjafjöllum, var á lífi 1870.<br> Faðir Þóru v...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Þóra Jónsdóttir húsfreyja í Ottahúsi. Stakkagerði og Kirkjubæ fæddist 1808 á Hrútafelli u. Eyjafjöllum, var á lífi 1870.
Faðir Þóru var Jón bóndi á Sitjanda 1816, f. 1760 í Pétursey í Mýrdal, Þorleifsson bónda í Pétursey, f. 1725, Jónssonar, og fyrri konu Þorleifs Ingibjargar húsfreyju, f. 1715, Jónsdóttur, (óvíst) bónda í Reynisholti og Neðri Dal u. Eyjafjöllum, f. 1688, Oddleifssonar, f. 1641, Runólfssonar, og konu Jóns Oddleifssonar, Vigdísar húsfreyju, f. 1672, Sveinsdóttur, samkv. V-Skaftf..

Móðir Þóru var Katrín Sigurðardóttir húsfreyja á Sitjanda í Eyvindarhólasókn 1816, ekkja hjá Þóru í Ottahúsi 1845, f. í ágúst 1779 á Rauðafelli þar, d. 25. júní 1856, Sigurðardóttir bónda á Rauðafelli, f. 1751, d. fyrir 1788, Bjarnasonar bónda á Raufarfelli og Hrútafelli Jónssonar, og konu Bjarna Jónssonar, Guðrúnar húsfreyju, f. 1718, Eiríksdóttur.
Móðir Katrínar og kona Sigurðar á Rauðafelli var Rannveig húsfreyja, f. 1759, Ólafsdóttir bónda í Pétursey, f. 1723, d. 1765, Jónssonar, og konu Ólafs Jónssonar, Katrínar húsfreyju, f. 1725, d. 19. janúar 1825, Jónsdóttur.

Maður Þóru, (9. nóvember 1843), var Bjarni Magnússon tómthúsmaður og sjómaður í Stakkagerði, f. 13. febrúar 1814 á Geirlandi á Síðu, fórst með Blíð 26. febrúar 1869.

Börn þeirra 1850:
1. Hugborg Bjarnadóttir, f. um 1846.
2. Rannveig Bjarnadóttir, f. um 1847.
Þær eru ekki með þeim 1860.

Þóra var hjá foreldrum sínum á Sitjanda 1816, 28 ára vinnukona í prestssetrinu að Holti 1840. Þar var Bjarni Magnússon 26 ára vinnumaður.
Hún var húsfreyja í Ottahúsi 1845 og 1850, í Stakkagerði 1860.
Húsfreyja á Kirkjubæ var hún við Blíð-slysið 1869.
Dætur átti hún tvær 1850, en þær voru ekki með henni 1860.
Niðursetningur var hún á Kirkjubæ 1870.


Heimildir