„Þórður Árnason (Fögruvöllum)“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
(Ný síða: '''Þórður Árnason''' tómthúsmaður í Sjólyst og víðar fæddist 3. maí 1809 í Mýrdal og lést 7. september 1869.<br> Foreldrar hans voru Árni Guðmundsson vinnumaður...)
 
m (Verndaði „Þórður Árnason (Fögruvöllum)“ (‎[edit=sysop] (ótiltekinn)))
(Enginn munur)

Útgáfa síðunnar 12. júlí 2014 kl. 20:06

Þórður Árnason tómthúsmaður í Sjólyst og víðar fæddist 3. maí 1809 í Mýrdal og lést 7. september 1869.
Foreldrar hans voru Árni Guðmundsson vinnumaður í Mýrdal, f. 1779, og kona hans Margrét Sigurðardóttir vinnukona, f. 1773, d. 5. janúar 1824.

Þórður var með föður sínum í Pétursey í Mýrdal 1817-1818 eða lengur, niðursetningur á Brekkum þar 1823-1825, í Pétursey 1825- 1827, á Höfðabrekku þar 1827 og áfram, og síðar vinnumaður í Fagradal þar til 1832, á Brekkum þar 1832-1833, á Rofunum þar 1833-1834, á Lækjarbakka þar 1834-35.
Hann var kominn til Eyja 1845 og var þá vinnumaður í Sjólyst. Hann var tómthúsmaður á Fögruvöllum 1850, kvæntur Þórunni. Þau eignuðust 4 börn, sem dóu í æsku. Þórður missti Þórunni 1860.
Hann kvæntist Geirdísi 1863 og átti með henni Þórð 1863.
Þau voru í Þórðarhjalli 1864 með drengina Einar og Þórð hjá sér. 1866 og 1867 voru þau í Háagarði með börnin, 1868 í Ólafshúsahjalli.
Þórður lést 1869, en Geirdís lifði til 1893.

Þórður var tvíkvæntur.
I. Fyrri kona hans var Þórunn Jónsdóttir húsfreyja, þá ekkja á Fögruvöllum, f. 1812, d. 30. apríl 1860.
Börn þeirra
1. Katrín Þórðardóttir, f. 21. október 1849, d. 20. maí 1850 „af barnaveikin“.
2. Katrín Þórðardóttir, f. 21. júlí 1852, d. 22. janúar 1854 „af lasleika“.
3. Árni Þórðarson, f. 2. janúar 1855, d. 20. september 1858 „af sáraveiki“.
4. Margrét Þórðardóttir, f. 26. september 1859, d. 25. júní 1860 úr „umgangsveiki“.

II. Síðari kona Þórðar, (20. nóvember 1863), var Geirdís Þórðardóttir húsfreyja, f. 1821, d. 1. febrúar 1893.
Barn þeirra var:
5. Þórður Þórðarson, f. 4. september 1863 í Kastala, d. 10. september 1902 í Vesturheimi.
Stjúpsonur Þórðar var
6. Einar Einarsson vinnumaður, f. 28. ágúst 1853, d. 9. ágúst 1888 úr holdsveiki.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.is.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.
  • Vestur-Skaftfellingar 1703-1966. Björn Magnússon. Leiftur 1970-1973.