Árni Rósinkranz Ólafsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 11. janúar 2016 kl. 21:54 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 11. janúar 2016 kl. 21:54 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Verndaði „Árni Rósinkranz Ólafsson“ (‎[edit=sysop] (ótiltekinn)))
Fara í flakk Fara í leit

Árni Rósinkranz Ólafsson fæddist 30. apríl 1881 í Kornhól og lést í Utah.
Foreldrar hans voru Málfríður Eiríksdóttir frá Gjábakka, f. 22. ágúst 1842 á Kirkjubæ, d. 29. febrúar 1912 í Utah, og barnsfaðir hennar Ólafur Magnússon vinnumaður, formaður og hagyrðingur, f. 15. apríl 1845, d. 4. október 1927.

Árni var með móður sinni í Kornhól og Garðsfjósi, fluttist með henni til Utah 1887.

Kona hans var skosk Jeanette Solomo. Dætur þeirra menntuðust og ,,komust vel til manns“.
Börn þeirra:
1. Freida.
2. Anna.
3. Margaret.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Prestþjónustubækur.
  • Saga Íslendinga í Vesturheimi I-V. Þorsteinn Þ. Þorsteinsson, Tryggvi J. Oleson. Winnipeg: Þjóðræknisfélag Íslendinga í Vesturheimi: Menningarsjóður 1940-1953.
  • Vesturfaraskrá 1870-1914. Júníus H. Kristinsson. Sagnfræðistofnun Háskóla Íslands 1983.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.