„Árni J. Johnsen“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ekkert breytingarágrip
Ekkert breytingarágrip
Lína 21: Lína 21:
[[Flokkur:Fólk dáið á 20. öld]]
[[Flokkur:Fólk dáið á 20. öld]]
[[Flokkur:Íbúar við Hilmisgötu]]
[[Flokkur:Íbúar við Hilmisgötu]]
[[Flokkur:Íbúar á Suðurgarði]]
[[Flokkur:Ofanbyggjarar]]

Útgáfa síðunnar 27. júní 2007 kl. 16:34

Sjá greinina um Árna Johnsen fyrir Alþingismanninn.


Árni Jóhannsson Johnsen fæddist í Vestmannaeyjum 13. október 1892 og lést árið 1963. Hann var sonur hjónanna Sigríðar Árnadóttur og Jóhanns Jörgens Johnsen útvegsbónda og hótel- og sjúkrahúshaldara í Vestmannaeyjum. Fyrri kona Árna var Margrét Marta Jónsdóttir. Eignuðust þau 6 börn, Svölu húsfreyju í Suðurgarði, Ingibjörgu kaupkonu, Áslaugu hjúkrunarkonu og trúboða, Gísla sjómann, Hlöðver bankafulltrúa og Sigfús sem var kennari og formaður ungra Sjálfstæðismanna í Vestmannaeyjum. Margrét lést eftir 30 ára sambúð þeirra. Seinni kona Árna var Olga Karlsdóttir. Þau eignuðust Guðfinn og Jóhannes auk þess sem Olga átti fjögur börn fyrir.

Árni ólst upp á fjölmennu athafnaheimili. Faðir Árna hafði mörg járn í eldinum. Auk þess að halda hótel og sjúkrahús í Eyjum og einnig var á heimilinu bæði stunduð útgerð og landbúnaður.

Framan af stundaði Árni kaupmennsku, útgerð, búskap og margs konar umboðsstörf. Árni var félagslyndur og hjálpaði bágstöddum mikið. Árni var bindindismaður síðari hluta ævinnar og var hann æðsti templari í stúkunni Sunnu samfleytt í 25 ár. Einnig var hann í forystusveit Sjálfstæðisflokksins um margra ára skeið. Árni var í fyrstu Lúðrasveit Vestmannaeyja og söng í kórum um 60 ára skeið.

Árni bjargaði alls 8 mönnum frá drukknum. Hann var sæmdur mörgum heiðursmerkjum og meðal annars fékk hann fjórum sinnum verðlaun úr Carnegie-sjóðnum og var sæmdur riddarakrossi fálkaorðunnar.



Heimildir

  • Sjómannadagsblað Vestmannaeyja. 1963.