Jóhann Jónsson (Sjólyst)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 19. mars 2015 kl. 20:19 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 19. mars 2015 kl. 20:19 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: '''Jóhann Jónsson''' vinnumaður í Sjólyst fæddist 25. október 1842 og drukknaði 1. júní 1862.<br> Foreldrar hans voru Jón bóndi á Dyrhólum í Mýrdal, f. 25. nóvemb...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Jóhann Jónsson vinnumaður í Sjólyst fæddist 25. október 1842 og drukknaði 1. júní 1862.
Foreldrar hans voru Jón bóndi á Dyrhólum í Mýrdal, f. 25. nóvember 1808 á Steig í Mýrdal, d. 20. júní 1882 í Hryggjum þar, Ólafs bónda á Steig, f. 1758 á Lambafelli, d. 1812-1816, Einarssonar, Ólafssonar og seinni konu Ólafs bónda á Steig, Fríðar húsfreyju á Steig 1801, f. 1768, d. 5. júní 1835, Jónsdóttur, Bjarnasonar.
Móðir Jóhanns og kona Jóns bónda var Ólöf húsfreyja, f. 4. júní 1811 á Höfðabrekku í Mýrdal, d. 14. júní 1873 á Vestri Búastöðum í Eyjum, Eiríksdóttir, Sighvatssonar og konu Eiríks, Sigríðar húsfreyju, f. 1769, Þorsteinsdóttur.

Jóhann var bróðir
1. Lárusar Jónssonar bónda, hreppstjóra og bátsformanns á Búastöðum.
2. Bjargeyjar Jónsdóttur vinnukonu á Búastöðum.

Jóhann var með foreldrum sínum á Dyrhólum til 1851, var tökubarn þar 1851-1852, hjá foreldrum sínum þar 1852-1853, léttadrengur á Kaldrananesi þar 1853-1855, var hjá foreldrum sínum á Dyrhólum 1855-1856, léttadrengur í Pétursey þar 1856-1858.
Hann var hjá foreldrum sínum á Dyrhólum 1858-1859, síðan vinnumaður í Pétursey, en fluttist þaðan að Sjólyst 1862 og drukknaði við Landeyjasand 1. júní 1863, var jarðs. frá Krosskirkju í A-Landeyjum.
Hann var ókvæntur og barnlaus í Eyjum.


Heimildir