Einar Jónsson yngri (Túni)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 21. janúar 2015 kl. 18:19 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 21. janúar 2015 kl. 18:19 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: '''Einar Jónsson''' frá Túni fæddist 11. febrúar 1856 á Gjábakka og lést 31. júlí 1878.<br> Foreldrar hans voru [[Jón Sverrisson (Túni)|Jón ...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Einar Jónsson frá Túni fæddist 11. febrúar 1856 á Gjábakka og lést 31. júlí 1878.
Foreldrar hans voru Jón Sverrisson húsmaður í Túni, f. 19. júní 1833, d. 10. maí 1859, og Margrét Jónsdóttir húskona, f. 6. apríl 1825, d. 25. desember 1865.
Einar var niðursetningur í Fagurlyst 1860, í Stakkagerði 1861, á Gjábakka 1866, í Nýjabæ 1867 og enn 1871, 16 ára léttadrengur á Kirkjubæ 1872, vinnumaður þar 1873, vinnudrengur þar 1874-1876, vinnuaður á Vesturhúsum 1877 og 1878, er hann hrapaði til bana í Flugum, ókvæntur og barnlaus.


Heimildir