Sigríður Jónsdóttir (Hólnum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 29. desember 2014 kl. 20:57 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 29. desember 2014 kl. 20:57 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: '''Sigríður Jónsdóttir''' bústýra á Oddsstöðum fæddist um 1828 í Breiðabólstaðarsókn og lést 6. mars 1900.<br> Sigríður var vinnukona í Steinmóða...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Sigríður Jónsdóttir bústýra á Oddsstöðum fæddist um 1828 í Breiðabólstaðarsókn og lést 6. mars 1900.

Sigríður var vinnukona í Steinmóðarbæ u. Eyjafjöllum 1850, fluttist að Móhúsum 1851 undan Eyjafjöllum, var vinnukona á Búastöðum 1852 og enn 1855.
Hún var bústýra Guðmundar Guðmundssonar á Hólnum 1856 og 1857, var með Sigurð son þeirra Guðmundar á fyrsta ári í Ottahúsi 1858, vinnuhjú í Nöjsomhed 1859, en Sigurður var þá hjá föður sínum á Hólnum.
Sigríður var vinnukona í Nöjsomhed 1860, í Ottahúsi 1861-1866, í Sjólyst 1867, á Búastöðum 1868 og 1869, í Garðinum 1870-1873, í Stakkagerði 1874.
Hún var bústýra hjá Þorsteini Jónssyni ekkli á Oddsstöðum 1875 og enn 1890, en á því ári lést Þorsteinn bóndi.
Sigríður var 66 ára vinnukona í Klöpp 1895. Hún var blind síðustu ár sín, lést á sveit á Kirkjubæ 1900.

I. Barnsfaðir Sigríðar var Guðmundur Guðmundsson smiður, f. 1828, d. 26. september 1890.
Barn þeirra var
1. Sigurður Guðmundsson kallaður Siggi bonn, f. 10. apríl 1858, d. 27. júní 1911.


Heimildir