Vigfús Einarsson (Miðhúsum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 29. nóvember 2014 kl. 18:38 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 29. nóvember 2014 kl. 18:38 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Vigfús Einarsson bóndi á Miðhúsum fæddist 17. júlí 1838 á Loftsölum í Mýrdal, lést í Vesturálfu.
Foreldrar hans voru Einar Jónsson bóndi á Loftsölum í Mýrdal, f. 1790 í Vindási í Hvolhreppi í Rang., d. 3. júní 1866 í Hryggjum í Mýrdal, og kona hans Kristín húsfreyja, f. 10. september 1815 í Hrífunesi í Skaftártungu. Hún var í Götu 1870 og fór þaðan á Rangárvelli 1873.
Vigfús ólst upp í Mýrdal. Hann fór til Eyja 1860, var þar vinnumaður á Miðhúsum það ár. Varð hann síðan bóndi þar.
Hann fór til Utah 1888 og vann þar daglaunavinnu.

I. Barnsmóðir Vigfúsar var Margrét Sverrisdóttir, þá á Miðhúsum, f. 6. maí 1832.
Barn þeirra var
1. Jóhann Vigfússon, f. 27. júlí 1862, d. 26. ágúst 1862 „af almennri barnaveiki“.

II. Kona Vigfúsar var Guðrún Guðmundsdóttir húsfreyja, f. 1834 í Fljótshlíð.
Hún fór til Utah 1889.
Börn Vigfúsar og Guðrúnar:
2. Guðlaugur Vigfússon sjávarbóndi á Vilborgarstöðum, f. 18. ágúst 1864, d. 4. maí 1942.
3. Sesselja Vigfúsdóttir, f. 1867. Hún fór til Utah 1891 frá Mandal.
4. Einar Vigfússon, f. 1872. Hann var vinnumaður í Garðinum 1890, fór til Utah 1892.
5. Árni Vigfússon, f. 1874. Hann fór til Utah 1887 frá Miðhúsum.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.is.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.
  • Vesturfaraskrá 1870-1914. Júníus H. Kristinsson. Sagnfræðistofnun Háskóla Íslands 1983.
  • Vestur-Skaftfellingar 1703-1966. Björn Magnússon. Leiftur 1970-1973.