Sigríður Guðný Guðmundsdóttir (Mandal)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 24. nóvember 2014 kl. 14:56 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 24. nóvember 2014 kl. 14:56 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit


Sigríður Guðný Guðmundsdóttir húsfreyja í Mandal fæddist 22. apríl 1857 og lést 12. maí 1914.
Foreldrar hennar voru Guðmundur Guðmundsson, f. 30. mars 1827, d. 16. febrúar 1865, og kona hans Guðríður Oddsdóttir húsfreyja, f. 1826, d. 18. nóvember 1901.

Sigríður Guðný ólst upp með foreldrum sínum. Hún var með þeim í Litlakoti 1860 og á Kirkjubæ.
Hún giftist Jóni 1879 og bjó á Löndum og síðan í Mandal.

Maður hennar var Jón Ingimundarson skipasmiður og útvegsmaður í Mandal, f. 3. ágúst 1856 og lést 21. apríl 1937.
Börn Sigríðar Guðnýjar og Jóns hér:
1. Sigríður Jónsdóttir húsfreyja í Ási, f. 27. apríl 1877, d. 3. desember 1941.
2. Guðmundur Jónsson, f. 12. júní 1880, d. 19. febrúar 1884..
3. Ingunn Jónsdóttir, f. 30. september 1889, d. 5. apríl 1890 úr „krampa“.
4. Hálfdán Jónsson, f. 22. júní 1892, d. 8. ágúst 1913.
5. Fóstursonur þeirra var dóttursonur þeirra Jón I. Stefánsson sjómaður í Mandal, f. 12. maí 1904, d. 6. júní 1969.


Heimildir

.