Jón Þorsteinsson (Löndum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 6. nóvember 2014 kl. 20:49 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 6. nóvember 2014 kl. 20:49 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Jón Þorsteinsson tómthúsmaður á Löndum fæddist um 1783 í Holtssókn u. Eyjafjöllum og lést 23. maí 1850.

Hann var 62 ára kvæntur „bóndi‟ á Löndum 1840 með Vilborgu konu sinni, en barns var ekki getið, sagður 67 ára ekkill og verkamaður í Dölum 1845. Þá var Vilborg sögð ekkja og fátæklingur (fattiglem) í Steinmóðshúsi. Jón var 72 ára kvæntur niðursetningur á Kirkjubæ 1850.

Kona Jóns var Vilborg Pétursdóttir, f. 1792, d. 1859.
Börn þeirra hér:
1. Jón Jónsson, f. 17. júlí 1831, d. 23. júlí 1831 úr „Barnaveiki“.
2. Þuríður Jónsdóttir, f. 1. júlí 1832, d. 20. september 1851. Hún var tökubarn í Efri-Vatnahjáleigu (Svanavatni) í A-Landeyjum hjá Bjarna Péturssyni móðurbróður sínum og Margréti Jónsdóttur 1835 og 1840, vinnukona í Efri-Vatnahjáleigu 1850 hjá Eyjólfi Pálssyni og Salvöru Bjarnadóttur frænku sinni, síðan vinnukona á Miðhúsum.
3. Jón Jónsson, tvíburi, f. 12. mars 1834, d. 16. mars 1834 „úr Barnaveiki“.
4. Jón Jónsson, tvíburi, f. 12. mars 1834, d. 2. maí 1834 „úr Barnaveiki“.
5. Andvana fædd stúlka 9. október 1835.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.is.
  • Landeyingabók – Austur-Landeyjar. Valgeir Sigurðsson og fleiri. Ritstjóri: Ragnar Böðvarsson. Austur-Landeyjahreppur, Gunnarshólma 1999.
  • Manntöl.