Jón Þorsteinsson (Löndum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 27. október 2014 kl. 18:29 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 27. október 2014 kl. 18:29 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Jón Þorsteinsson tómthúsmaður á Löndum fæddist um 1783 í Holtssókn u. Eyjafjöllum og lést 23. maí 1850.

Hann var 62 ára kvæntur „bóndi‟ á Löndum 1840 með Vilborgu konu sinni, en barns var ekki getið, sagður 67 ára ekkill og verkamaður í Dölum 1845. Þá var Vilborg sögð ekkja og fátæklingur (fattiglem) í Steinmóðshúsi. Jón var 72 ára kvæntur niðursetningur á Kirkjubæ 1850.

Kona Jóns var Vilborg Pétursdóttir, f. 1792, d. 1859.
Börn þeirra hér:
1. Jón Jónsson, f. 17. júlí 1831, d. 23. júlí 1831 úr „Barnaveiki“.
2. Þuríður Jónsdóttir, f. 1. júlí 1832, d. 20. september 1851. Hún var tökubarn í Efri-Vatnahjáleigu (Svanavatni) í A-Landeyjum hjá Bjarna Péturssyni móðurbróður sínum og Margréti Jónsdóttur 1835 og 1840, vinnukona í Efri-Vatnahjáleigu 1850 hjá Eyjólfi Pálssyni og Salvöru Bjarnadóttur frænku sinni, síðan vinnukona á Miðhúsum.
3. Jón Jónsson, f. 12. mars 1833, d. 16. mars 1833.
4. Andvana fædd stúlka 9. október 1835.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.is.
  • Landeyingabók – Austur-Landeyjar. Valgeir Sigurðsson og fleiri. Ritstjóri: Ragnar Böðvarsson. Austur-Landeyjahreppur, Gunnarshólma 1999.
  • Manntöl.