Guðmundur Jesson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 1. ágúst 2014 kl. 17:58 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 1. ágúst 2014 kl. 17:58 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Kynning.

Guðmundur Jesson verkamaður á Litlu-Grund, fæddist 13. nóvember 1867 í Nýborg og lést 19. apríl 1931.
Foreldrar hans voru Jes Nicolai Thomsen verslunarstjóri í Godthaabsverslun, f. 7. nóvember 1840, d. 30. janúar 1919, og barnsmóðir hans Elín Steinmóðsdóttir vinnukona, f. 1836.

Hálfystur Guðmundar voru
1. Jóhanna Margrét Jesdóttir, f. 25. júní 1870, dóttir Halldóru Samúelsdóttur. Hún mun hafa látist á leið til Vesturheims.
2. Anna Petrea Thomsen húsfreyja, f. 9. maí 1871, d. 3. maí 1837. Hún varð kona Friðriks Gíslasonar frá Hlíðarhúsi.

I. Barnsmóðir hans var Kristín Ólafsdóttir, þá í Júlíushaab, f. 8. september 1868, d. 6. janúar 1944.
Barnið var
Guðríður Guðmundsdóttir, f. 12. maí 1893, d. 24. júní 1984. Hún varð kona Stefáns Vilhjálmssonar.

Guðmundar er getið sem bjargveiðimanns án umsagnar á blöðum Árna Árnasonar símritara.


Heimildir