Friðrik Gíslason (Hlíðarhúsi)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Foreldrar og systkini Friðriks. Friðrik er aftast til vinstri.

Friðrik Gísli Gíslason var fæddur 11. maí 1870 í Hlíðarhúsi í Vestmannaeyjum og lést 15. janúar 1906 í Reykjavík. Hann var sonur Gísla Stefánssonar bónda og verzlunarmanns og konu hans Soffíu Lisbeth Andersdóttur frá Stakkagerði. Móðir hennar var Ásdís Jónsdóttir. Kona Friðriks var Anna Thomsen. Bróðir Friðriks var Jes.

Friðrik stundaði sjóróðra en var annars lærður ljósmyndari. Friðrik tók fyrstur manna ljósmyndir í Vestmannaeyjum. Hann var ljósmyndari þar á árunum 1892 - 1894. Hann var föðurbróðir Friðriks Jessonar safnvarðar í Vestmannaeyjum.

Friðrik var fimur, snarpur og fylginn sér og glímumaður ágætur. Hann kenndi sund í Vestmannaeyjum 1892 - 1894. Hann kenndi um skeið glímu hjá Glímu- og sundfélagi Vestmannaeyja, sem stofnað var 7. nóvember 1894 með 16 félagsmönnum.

Friðrik lést í byrjun árs 1906, aðeins 35 ára gamall.


Heimildir

Önnur umfjöllun á Heimaslóð: Ritverk Árna Árnasonar/Friðrik Gíslason (Hlíðarhúsi)