Halldóra Samúelsdóttir (Vesturhúsum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Halldóra Samúelsdóttir frá Vesturhúsum fæddist 19. september 1844, fór til Vesturheims.
Foreldrar hennar voru Samúel Bjarnason mormónaprestur, f. 22. apríl 1823, d. 16. ágúst 1890 í Vesturheimi, og barnsmóðir hans Halldóra Jónsdóttir vinnukona, síðar húsfreyja á Steinsstöðum, f. 10. október 1819, d. 24. mars 1883.

Halldóra var hjá Margréti föðurmóður sinni á Vesturhúsum 1845, með móður sinni og fósturföður á Steinsstöðum 1850, vinnukona í Godthaab 1860, 19 ára „vinnukind “ í Brandshúsi 1863, var sjálfrar sín í Grímshjalli 1870 og fór á því ári til Vesturheims með barn sitt.

I. Barnsfaðir hennar var Jes Nicolai Thomsen verslunarstjóri, f. 7. nóvember 1840, d. 30. janúar 1919.
Barn þeirra var
1. Jóhanna Margrét Jesdóttir, f. 25. júní 1870. Hún var hálfsystir, samfeðra, Guðmundar Jessonar verkamanns, f. 13. nóvember 1867, d. 19. apríl 1931, og Önnu Petreu Thomsen húsfreyju, f. 9. maí 1871, d. 3. maí 1937.
Jóhanna Margrét fór með móður sinni áleiðis til Vesturheims 1870.

II. Maður Halldóru vestra var Fredrick Hansen.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.
  • The Icelanders of Utah. La Nora Allsted.
  • Vesturfaraskrá 1870-1914. Júníus H. Kristinsson. Sagnfræðistofnun Háskóla Íslands 1983.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.