Hannes Sæmundsson (Nýjabæ)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 30. júní 2014 kl. 22:55 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 30. júní 2014 kl. 22:55 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: '''Hannes Sæmundsson''' vinnumaður í Nýjabæ fæddist 3. febrúar 1832 í Tjarnarkoti í A-Landeyjum og hrapaði til bana 21. júlí 1858.<br> Foreldrar hans voru Sæ...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Hannes Sæmundsson vinnumaður í Nýjabæ fæddist 3. febrúar 1832 í Tjarnarkoti í A-Landeyjum og hrapaði til bana 21. júlí 1858.
Foreldrar hans voru Sæmundur Símonarson bóndi á Kirkjulandi í A-Landeyjum, f. í október 1801 á Skíðbakka í A-Landeyjum, d. 17. júlí 1846 á Kirkjulandi, og fyrri kona hans Margrét Þorsteinsdóttir húsfreyja, f. 2. október 1796, d. 26. ágúst 1843.

Föðurbróðir Hannesar var Jón Símonarson bóndi í Gvendarhúsi, faðir Jóns í Gvendarhúisi Systkini Hannesar í Eyjum voru:
1. Hreinn Sæmundsson vinnumaður í Frydendal, f. 14. mars 1829, d. 1. október 1850.
2 Margrét Sæmundsdóttir húsfreyja á Steinsstöðum, f. 1. október 1835, d. 12. mars 1880.
. 3. Jónas Sæmundsson sjómaður, f. 31. ágúst 1841. Hann fluttist til Danmerkur 1867.

Hannes var með foreldrum sínum 1835 og 1840, með ekklinum föður sínum á Kirkjulandi 1845, léttadrengur á Skíðbakka 1850.
Hann fluttist til Eyja 1851 og var þá vinnumaður í Nýjabæ. Þar var hann enn 1858, er hann hrapaði úr Dufþekju við hvannatekju.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Landeyingabók – Austur-Landeyjar. Valgeir Sigurðsson og fleiri. Ritstjóri: Ragnar Böðvarsson. Austur-Landeyjahreppur, Gunnarshólma 1999.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.