Sveinn Guðmundsson (Þorlaugargerði)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 19. júní 2014 kl. 14:19 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 19. júní 2014 kl. 14:19 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Verndaði „Sveinn Guðmundsson (Þorlaugargerði)“ (‎[edit=sysop] (ótiltekinn)))
Fara í flakk Fara í leit

Sveinn Guðmundsson bóndi og sáttasemjari í Þorlaugargerði og á Oddsstöðum fæddist 1764 í Þorlaugargerði og lést 5. nóvember 1832 á Oddsstöðum.
Bóndi í Þorlaugargerði 1762 og líklegur faðir Sveins var Guðmundur Eyjólfsson bóndi, bátasmiður, kirkjusmiður, kallaður kóngssmiður.
Kona Guðmundar og líkleg móðir Sveins var Þorgerður Einarsdóttir húsfreyja.
Þau Guðmundur og Þorgerður voru foreldrar sr. Bjarnhéðins prests á Kirkjubæ.

Kona Sveins, (2. október 1795), var Málhildur Jónsdóttir, f. 1766, d. 6. júní 1843.
Barn þeirra var
1. Jón Sveinsson, f. 29. maí 1797, d. 7. júní 1797 úr ginklofa.


Heimildir