Málhildur Jónsdóttir (Þorlaugargerði)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Málhildur Jónsdóttir húsfreyja í Þorlaugargerði og á Oddsstöðum fæddist 1766 á Oddsstöðum og lést 6. júní 1843.
Uppruni er ókunnur, en einn af ábúendum Oddsstaða 1762 var Jón Einarsson bóndi.

Málhildur var húsfreyja í Þorlaugargerði og síðar á Oddsstöðum. Eftir lát Sveins 1832 fluttist hún að Eyvindarholti u. Eyjafjöllum 1833.

Maður Málhildar, (2. október 1795), var Sveinn Guðmundsson bóndi og sáttasemjari, f. 1764, d. 5. nóvember 1832.
Barn þeirra hér:
1. Jón Sveinsson, f. 29. maí 1797, d. 7. júní 1797 úr ginklofa.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.