Guðný Auðunsdóttir (Stóra-Gerði)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 28. mars 2014 kl. 12:11 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 28. mars 2014 kl. 12:11 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Verndaði „Guðný Auðunsdóttir (Stóra-Gerði)“ (‎[edit=sysop] (ótiltekinn)))
Fara í flakk Fara í leit

Guðný Auðunsdóttir húsfreyja í Stóra-Gerði fæddist 1770 á Arngeirsstöðum í Fljótshlíð og lést 1. júlí 1839 í Fuglavík á Reykjanesi.
Móðir hennar var Guðrún Jónsdóttir húsfreyja á Kirkjulæk 1801, f. 1740, d. 14. febrúar 1827, og barnsfaðir hennar Auðun.

Guðný var 31 árs á Kirkjulæk í Fljótshlíð 1801, dóttir Guðrúnar Jónsdóttur húsfreyju, konu Sigmundar Björnssonar bónda. Hún var því hálfsystir, (sammædd), Þórunnar móður Ragnhildar Ingimundardóttur húsfreyju á Búastöðum konu Eyjólfs Þorbjörnssonar.
Guðný eignaðist barnið Einar Ólafsson í Fljótshlíð 1810.
Hún var húsfreyja í Stóra-Gerði a.m.k.1812-1818, er þau Ólafur fluttust að Tjörnum u. Eyjafjöllum. Þar voru þau 1835 ásamt Einari, konu hans Drisjönu Þórarinsdóttur, Þórunni dóttur þeirra og Vilborgu móður Ólafs.
Þau Guðný fluttust ásamt Einari, Drisjönu konu hans og Þórunni barni Einars að Fuglavík á Rosmhvalsnesi 1837.
Ólafur varð úti í „fjúkbyl“ milli Keflavíkur og Garðs 1838. Fannst lík hans eftir 3 vikur frá því hans var saknað.
Guðný lést 1839 í Fuglavík úr landfarsótt.

Maður Guðnýjar, (2. september 1810 ), var Ólafur Stefánsson bóndi í Stóra-Gerði, f. 11. apríl 1786, d. 13. mars 1838.
Börn þeirra hér:
2. Einar Ólafsson bóndi á Tjörnum 1835, f. 5. október 1810 á Kirkjulæk í Fljótshlíð, d. 20. desember 1839 í Fuglavík.
3. Stefán Ólafsson, f. 7. júlí 1812, d. 12. júlí 1812 úr ginklofa.
4. Andvana fæddur drengur 19. október 1814, „dó í fæðingu“.


Heimildir