Margrét Gísladóttir (Jónshúsi)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 1. mars 2014 kl. 17:22 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 1. mars 2014 kl. 17:22 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: '''Margrét Gísladóttir''' húsfreyja á Vesturhúsum og í Jónshúsi fæddist 6. maí 1797 og lést 15. september 1860.<br> Foreldrar hennar voru Gísli bóndi í Hólsh...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Margrét Gísladóttir húsfreyja á Vesturhúsum og í Jónshúsi fæddist 6. maí 1797 og lést 15. september 1860.
Foreldrar hennar voru Gísli bóndi í Hólshúsum í Höfnum, f. 1750, d. 12. maí 1807, Kjartansson bónda í Vorsabæ í Ölfusi, f. 1719, Helgasonar og kona Gísla, Guðrún, skírð 30. ágúst 1765, d. 27. apríl 1836, Hansdóttir bónda í Kotmúla í Fljótshlíð, f. 1730, d. 22. október 1791, Bergsteinssonar.

Margrét var 5 ára í fóstri hjá sr. Benedikt Ingimundarsyni á Stað í Grindavík 1801. Hún var vinnukona á Kirkjulæk í Fljótshlíð 1816 og á Teigi þar 1835.
Hún var komin til Eyja 1840 og var þar vinnukona á Miðhúsum.
Við skráningu 1845 var hún gift húsfreyja á Vesturhúsum með Guðmundi og fósturbarninu Halldóru Samúelsdóttur, f. 19. september 1844, en hún var barn Samúels sonar hennar og Halldóru Jónsdóttur, síðar húsfreyju á Steinsstöðum.

I. Barnsfaðir Margrétar var Bjarni Jónsson bóndi á Strönd á Rangárvöllum, Helgusöndum og Efri-Kvíhólma undir Eyjafjöllum, f. 21. febrúar 1799, d. 25. apríl 1877. Hann var sonur Jóns Jónssonar, síðar bónda í Háagarði.
Barn þeirra var
1. Samúel Bjarnason bóndi í Görðum við Kirkjubæ, mormónaprestur, f. 22. apríl 1823, d. 16. ágúst 1890 í Spanish Fork, Utah.
Bjarni Jónsson 21. febrúar 1799 - 25. apríl 1877 Bóndi á Strönd í Landeyjum, síðar í Kvíhólma undir Eyjafjöllum.

II. Maður Margrétar, (29. október 1841), var Guðmundur Guðmundsson sjómaður á Vesturhúsum, f. um 1795 í Sigluvíkursókn, Rang.
Hún var síðari kona hans.
Þau voru barnlaus.


Heimildir