Margrét Magnúsdóttir (Háagarði)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 3. janúar 2014 kl. 21:36 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 3. janúar 2014 kl. 21:36 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit


Margrét Magnúsdóttir húsfreyja í Háagarði fæddist 28. október 1838 í Eyjum.
Foreldrar hennar voru Magnús Sigurðsson sjómaður í Háagarði, síðar bóndi þar, f. 1796, d. 20. ágúst 1863, og kona hans Margrét Arngrímsdóttir húsfreyja, f. 24. október 1811, d. 5. júní 1873.

Margrét ólst upp með foreldrum sínum í Háagarði.
Hún var húsfreyja þar 1870, 1880, 1890, en finnst ekki 1901.

Maður Margrétar var Guðmundur Þorkelsson bóndi í Háagarði, f. 7. júlí 1834 í Hryggjum í Mýrdal, d. 14. febrúar 1897 í Háagarði.
Börn þeirra hér:
1. Guðrún Guðmundsdóttir, f. 1863, gift Guðmundi Ísleifssyni á Vilborgarstöðum, f. 22. júní 1859, d. 25. desember 1903. Hún varð ekkja 1903 og fór til Vesturheims 1905 með Margréti Ísleifu Guðmundsdóttur dóttur sína.
2. Magnús Guðmundsson í Hlíðarási, f. 1. ágúst 1867, d. 2. ágúst 1949.
3. Halldóra Guðmundsdóttir, f. 1869.
4. Margrét Halldóra Guðmundsdóttir, f. 20. september 1873, d. 6. apríl 1924. Hún fór til Vesturheims 1904 með manni sínum Gunnari Jónssyni 25 ára og dóttur þeirra Stefaníu Gunnarsdóttur 2 ára.
5. Vilhjálmur Guðmundsson, f. 7. nóvember 1877, d. 31. október 1923. Hann fór til Vesturheims 1905.
6. Guðjón Guðmundsson, f. í október 1882. Hann fór til Vesturheims 1905. Bjó í Saskatschewan 1911.
Barn Guðmundar áður og í Háagarði 1870:
7. Vilborg Guðmundsdóttir, f. 26. ágúst 1856, d. 23. september 1875.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.is.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubók.
  • Vesturfaraskrá 1870-1914. Júníus H. Kristinsson. Sagnfræðistofnun Háskóla Íslands 1983.