Jón Þorsteinsson (Löndum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 17. desember 2013 kl. 20:57 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 17. desember 2013 kl. 20:57 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Jón Þorsteinsson tómthúsmaður á Löndum fæddist um 1783 í Holtssókn u. Eyjafjöllum og lést 23. maí 1850.

Hann var 62 ára kvæntur „bóndi‟ á Löndum 1840 með Vilborgu konu sinni, en barns var ekki getið, sagður 67 ára ekkill og verkamaður í Dölum 1845. Þá var Vilborg sögð ekkja og fátæklingur (fattiglem) í Steinmóðshúsi. Jón var 72 ára kvæntur niðursetningur á Kirkjubæ 1850.

Kona Jóns var Vilborg Pétursdóttir, f. 1792, d. 1859.
Börn þeirra hér:
3. Jón Jónsson, f. 17. júlí 1831, d. 23. júlí 1831.
4. Þuríður Jónsdóttir, f. 1. júlí 1832, d. 20. september 1851.
5. Jón Jónsson, f. 12. mars 1833, d. 16. mars 1833.
6. Andvana fædd stúlka 9. október 1835.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.is.
  • Landeyingabók – Austur-Landeyjar. Valgeir Sigurðsson og fleiri. Ritstjóri: Ragnar Böðvarsson. Austur-Landeyjahreppur, Gunnarshólma 1999.
  • Manntöl.