Jón Helgason (Dölum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 15. desember 2013 kl. 21:28 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 15. desember 2013 kl. 21:28 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: '''Jón Helgason''' bóndi í Dölum fæddist 1779 í Efri-Vík í Landbroti og lést 5. mars 1834 í Þurfalingsslysinu. <br> Faðir hans var Helgi ...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Jón Helgason bóndi í Dölum fæddist 1779 í Efri-Vík í Landbroti og lést 5. mars 1834 í Þurfalingsslysinu.

Faðir hans var Helgi bóndi í Efri-Vík 1778 og 1783, d. 1784, Guðmundsson, (ætt ókunn).

Móðir Jóns og kona Helga var Steinunn húsfreyja, f. 1740, á lífi 1783, Eiríksdóttir bónda í Þykkvabæ í Álftaveri, f. 1711, Órækjusonar, f. 1685, Alexanderssonar, og óþekktrar konu Órækju.
Móðir Steinunnar Eiríksdóttur er óþekkt.

Jón var með foreldrum sínum 1783. Hann var niðursetningur á Maríubakka í Fljótshverfi, V-Skaft. 1787-1788, á Kálfafelli þar 1788-1791, á Prestbakka á Síðu 1793-1794, í Nýjabæ 1794-1795. Þá var hann tökupiltur í Heiðarseli á Síðu 1795/6-1797/1800, vinnumaður í Mörtungu þar 1797/1800-1801, í Hörgsdal þar 1805 eða fyrr til 1806, á Geirlandi þar 1806-1808.
Hann var á Gjábakka 1811, í Garðsfjósi 1813, orðinn bóndi í Dölum 1815, þá með Margréti og börnunum Guðmundi og Einari.
Jón lést 1834.

Kona Jóns var Margrét Guðmundsdóttir eldri, húsfreyja, f. 1787, d. 14. nóvember 1848. Jón var fyrri maður hennar. Síðari maður hennar var Einar Jónsson bóndi í Dölum.
Börn Helga og Margrétar hér:
1. Ingibjörg Jónsdóttir, f. 22. október 1811, d. 29. október 1811.
2. Guðmundur Jónsson, f. 1812 í Kornhól, d. 5. mars 1834 í Þurfalingsslysinu.
3. Einar Jónsson, f. 13. maí 1815, d. 13. mars 1894.
4. Jón Jónsson, f. 21. desember 1818, d. 26. desember 1818.
5. Helgi Jónsson, f. 4. maí 1821, d. 15. maí 1821.
6. Margrét Jónsdóttir, f. 8. maí 1824, d. 15. maí 1824.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.is.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.
  • Vestur-Skaftfellingar 1703-1966. Björn Magnússon. Leiftur 1970-1973.