Þóra Jónsdóttir (Stakkagerði)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 13. nóvember 2013 kl. 11:15 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 13. nóvember 2013 kl. 11:15 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Þóra Jónsdóttir húsfreyja í Ottahúsi. Stakkagerði og Kirkjubæ fæddist 1808 á Hrútafelli u. Eyjafjöllum og lést 14. mars 1894.

Móðir Þóru var Katrín Sigurðardóttir húsfreyja á Sitjanda í Eyvindarhólasókn 1816, ekkja hjá Þóru í Ottahúsi 1845, f. í ágúst 1779 á Rauðafelli þar, d. 25. júní 1856.

Faðir Þóru og maður Katrínar í Ottahúsi var Jón Þorleifsson bóndi á Sitjanda, f. 1735 í Pétursey í Mýrdal.
Faðir hans var Þorleifur bóndi í Pétursey 1735, f. 1705, Jónsson prests í Meðallandsþingum, f. 1673, d. 1707, Vigfússonar prests á Felli í Mýrdal, f. 1647, d. 1731, Ísleifssonar, og fyrstu konu sr. Vigfúsar, Kristínar húsfreyju, f. (1650), d. fyrir mt 1703, Magnúsdóttur.
Móðir Þorleifs í Pétursey og kona sr. Jóns var Gróa „yngri‟ húsfreyja, f. 1677, d. 1707 í bólunni, Jónsdóttir bónda á Flögu í Skaftártungu, f. 1635, d. 1708, Fabíanssonar, og konu Jóns á Flögu, Hallgerðar húsfreyju, f. 1645, d. um 1730, Sigmundsdóttur.
Móðir Jóns Þorleifssonar og fyrri kona Þorleifs í Pétursey var Ingibjörg húsfreyja, f. 1715, Jónsdóttir, (óvíst) bónda í Reynisholti og Neðri Dal u. Eyjafjöllum, f. 1688, Oddleifssonar, f. 1641, Runólfssonar, og konu Jóns Oddleifssonar, Vigdísar húsfreyju, f. 1672, Sveinsdóttur.

Þóra var hjá foreldrum sínum á Sitjanda 1816, 28 ára vinnukona í prestssetrinu að Holti 1840. Þar var Bjarni Magnússon 26 ára vinnumaður.
Hún var húsfreyja í Ottahúsi 1845 og 1850, í Stakkagerði 1860.
Þau Bjarni misstu báðar dættur sínar úr barnaveiki með þriggja daga millibili.
Húsfreyja á Kirkjubæ var hún við Blíð-slysið 1869.
Hún var niðursetningur í Norðurbænum á Kirkjubæ 1870, í Jónshúsi 1880 og í Staðarbænum á Kirkjubæ 1890.

Maður Þóru, (9. nóvember 1843), var Bjarni Magnússon tómthúsmaður og sjómaður í Stakkagerði, f. 13. febrúar 1814 á Geirlandi á Síðu, fórst með Blíð 26. febrúar 1869.
Börn þeirra hér:
1. Hugborg Bjarnadóttir, f. 29. nóvember 1846, d. 23. apríl 1851 úr barnaveiki.
2. Rannveig Bjarnadóttir, f. 1. febrúar 1848, d. 20. apríl 1851 úr barnaveiki.


Heimildir