Einar Jónsson (Dölum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 12. nóvember 2013 kl. 20:26 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 12. nóvember 2013 kl. 20:26 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Einar Jónsson bóndi og sjómaður frá Dölum, fæddist 1815 og lést 13. mars 1894.

Faðir Einars var Jón bóndi í Dölum 1816, f. 1779 í Efri-Vík í Landbroti, Helgason bónda í Efri-Vík 1778 og 1783, d. 1784, Guðmundssonar og konu Helga, Steinunnar húsfreyju, f. 1740, Eiríksdóttur bónda í Þykkvabæ, f. 1711, Órækjusonar.

Móðir Einars var Margrét húsfreyja í Dölum, f. 1787 á Kanastöðum í A-Landeyjum, d. 14. nóvember 1848, Guðmundsdóttir bónda á Bryggjum þar, f. 1765, d. 3. febrúar 1820 á Kirkjubæ, Ólafssonar, og fyrri konu Guðmundar, Ingibjargar Jónsdóttur, f. 1763.

Einar var með foreldrum sínum í æsku, með móður sinni í Dölum 1835, kvæntur bóndi í Dölum 1840, kvæntur sjómaður á Kirkjubæ 1845. Hann var skilinn húsbóndi í Einarshúsi 1860, sjávarbóndi í Litlabæ með konu sinni Valgerði, barni þeirra Sigurbjörgu og Guðríði dóttur Valgerðar 1870 og 1880.
Valgerður fór til Vesturheims 1886 og Einar var 75 ára niðursetningur í Litlabæ hjá Ástgeiri Guðmundssyni og Kristínu Magnúsdóttur konu hans 1890.
Einar lést 1894.

Einar var tvíkvæntur.
I. Fyrri kona, (skildu), var Guðríður Jónsdóttir, f. 1810, d. 11. september 1886. Hún giftist síðar Tíla Oddssyni í Norðurgarði.
Þau Guðríður komu ekki upp börnum.

II. Síðari kona Einars var Valgerður Jónsdóttir frá Norðurgarði, f. 20. ágúst 1832, d. 7. október 1896. Valgerður yfirgaf hann og fór til Vesturheims 1886.
Barn þeirra Valgerðar var
Sigurbjörg Einarsdóttir, f. 1862. Hún fór til Vesturheims 1889.


Heimildir