Ritverk Árna Árnasonar/Brynjólfur Sigfússon

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 13. ágúst 2013 kl. 15:58 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 13. ágúst 2013 kl. 15:58 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: '''''<big>Úr fórum Árna Árnasonar símritara: <br>Bjargveiðimannatal.</big>'''''<br> Brynjúlfur var rösklega meðalmaður á hæð, þrekinn vel...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Úr fórum Árna Árnasonar símritara:
Bjargveiðimannatal.

Brynjúlfur var rösklega meðalmaður á hæð, þrekinn vel og sterkur, lipur og snar í hreyfingum, skolhærður, ljós í andliti og með nokkuð stutt og breitt andlit, hátt enni og kinnbein, ljósskolhærður og ljós yfirlitum.
Hann var nokkuð skapstór, þver í skoðunum og nærri einþykkur, stríðinn stundum og hélt fast á málstað sínum, fús og fljótur til sátta eftir orðaleik, og í gleðskap kátur og skemmtilegur.
Hann var töluvert við veiðar fyrr á árum, og allgóður að veiða, en hin síðari ár hættur þeim störfum, nema sér til gamans og upplyftingar. Þar var hann góður og skemmtilegur félagi og reyndist félögum sínum vel.
Hann hafði áhuga á bættum aðbúnaði veiðimanna í úteyjum, hratt fram bættum húsakosti í Elliðaey, stofnaði gestabók og sjóð til kofans.
Góður kaupmaður, réttsýnn og ábyggilegur í öllum viðskiptum svo orð fór af.


Úr fórum Árna Árnasonar, efnisyfirlit

Önnur umfjöllun á Heimaslóð: Brynjólfur Sigfússon


Heimildir

  • Eyjar og úteyjalíf – Úrval verka Árna Árnasonar símritara frá Grund. Sögufélag Vestmannaeyja í samstarfi við Safnahús Vestmannaeyja 2012.