Ritverk Árna Árnasonar/Bergur Guðjónsson (Kirkjubóli)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 6. ágúst 2013 kl. 17:57 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 6. ágúst 2013 kl. 17:57 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: '''Guðjón ''Bergur'' Guðjónsson''' á Kirkjubóli, fæddist 5. apríl 1894 og lést 5. maí 1940.<br> Foreldrar hans voru [[Guðjón Björnsson (Kirkjubóli)|Guðj...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Guðjón Bergur Guðjónsson á Kirkjubóli, fæddist 5. apríl 1894 og lést 5. maí 1940.
Foreldrar hans voru Guðjón Björnsson bóndi á Kirkjubóli, f. 2. maí 1862, d. 4. maí 1940, og kona hans Ólöf Lárusdóttir húsfreyja, f. 19. desember 1862, d. 16. nóvember 1944.

Bergur var listhagur maður. Hann var bræðslumaður að atvinnu.
Hann lést degi seinna en faðir hans, og voru þeir feðgar jarðsettir sama dag.


Heimildir