Vilborg Steinmóðsdóttir (Steinmóðshúsi)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 3. apríl 2013 kl. 21:14 eftir Víglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 3. apríl 2013 kl. 21:14 eftir Víglundur (spjall | framlög) (Ný síða: '''Vilborg Steinmóðsdóttir''' vinnukona frá Steinmóðshúsi, fæddist 27. febrúar 1833 og lést 1907.<br> Foreldrar hennar voru [[Steinmóður Vigfússon (Steinmóðshúsi)|Ste...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Vilborg Steinmóðsdóttir vinnukona frá Steinmóðshúsi, fæddist 27. febrúar 1833 og lést 1907.
Foreldrar hennar voru Steinmóður Vigfússon, f. 1775, d. 28. júlí 1846 og kona hans Elín Guðmundsdóttir, f. 27. ágúst 1796, d. 8. júlí 1876.

Vilborg er með ekkjunni móður sinni í Steinmóðshúsi 1850, 17 ára. Hún var 22 ára ógift vinnukona á Miðhúsum 1855.
Árið 1860 er hún komin til móður sinnar með barnið Ingimund Árnason, 2 ára. Þar er hún enn 1870 án barnsins. 1890 er hún vinnukona í Stakkagerði nr. 2, Borg við Stakkagerðistún og þar er einnig barnið Konráð Ingimundarson, 4 ára (sonarbarn hennar). Á manntali 1901 er hún niðursetningur í Dalbæ hjá Þóru Jónsdóttur húsfreyju.

Vilborg giftist ekki svo kunnugt sé, en átti a.m.k. tvö börn.
1. Hún eignaðist barn, Ingimund Árnason. Faðir hans var skráður Árni Sigurðsson vinnumaður í Dölum og Presthúsum, f. 11. maí 1825 á Grímsstöðum í Meðallandi, d. 19. apríl 1864, drukknaði. Sagnir innan fjölskyldu afkomenda herma, að Vilborg hafi um skeið verið bústýra hjá Andreas August von Kohl sýslumanni og hafi hann verið faðir Ingimundar. Sýslumaðurinn var konulaus á Íslandi.
2. Hún átti barn með Sighvati Sigurðssyni, f. 10. júlí 1835, d. 8. júlí 1874.
Barnið var Kristín Sighvatsdóttir, f. 1869. Hún var hjá föður sínum á Vilborgarstöðum 1870, vinnukona í Godthaab 1890, en fór til Vesturheims 1902.


Heimildir