Rósa Eyjólfsdóttir (Þorlaugargerði)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 18. mars 2013 kl. 17:20 eftir Víglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 18. mars 2013 kl. 17:20 eftir Víglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Sjá aðgreiningarsíðuna fyrir aðra sem hafa borið nafnið „Rósa Eyjólfsdóttir


Rósa Eyjólfsdóttir fæddist 3. júní 1876 og lést 30. október 1944. Foreldrar hennar voru Eyjólfur Eiríksson og Jórunn Skúladóttir.

Eiginmaður Rósu hét Jón Pétursson og var bátasmiður. Uppeldissonur þeirra var Jón Guðjónsson frá Oddsstöðum.

Þau fengu byggingu fyrir Þorlaugargerði eystra árið 1905, endurbyggðu íbúðarhúsið og bjuggu þar. Jón Pétursson lést 1932 en Rósa bjó í Þorlaugargerði til dauðadags og tók uppeldissonur þeirra, Jón, þá við búskap á jörðinni.