Mynd:Hus austurb.jpg
Hus_austurb.jpg (583 × 418 mynddílar, skráarstærð: 60 KB, MIME-gerð: image/jpeg)
Húsið að Austurvegi 16. Þar bjuggu hjónin Guðrún Guðjónsdóttir húsfreyja og Bjarni Eyjólfsson verkstjóri. Þau byggðu húsið á síðari hluta fimmta áratugar 20 aldar. Í húsinu fæddust tvö af barnabörnum þeirra þau Engilbert Gíslason f.15.2.1951 og Guðrún Birna Leifsdóttir f. 9.5.1951 Bakvið húsið vestanvert sér í Austurveg 9, hús Beru Þorsteinsdóttur og Ingólfs Arnarsonar. Í vinstri kanti sést í hlöðu og fjós Laufáss. Húsið til hægri er Austurvegur 18, hús Guðfinnu Bjarnadóttur og Einars Guðmundssonar. Myndin mun tekin af vesturlóð Kirkjubæjarbrautar 15 og sér í rennurnar. Vegurinn er tengivegur á milli Austurvegar og Kirkjubæjarbrautar og lá á milli Kirkjubæjarbrautar 11 (Goðasteins) og Kirkjubæjarbrautar 15 og suður austan Presthúsa. Í Ytri höfnina ber Verkamannabústaðina hina síðari. Yfir vesturhorn Austurvegar 9 ber Skálholt-eldra. Þar fjær sér í risið á Höfn, húsi Tómasar M. Guðjónssonar og austan Hafnar er Bakkastígur 3, (Fúsahús), hús Vigfúsar frá Pétursborg.
Heimildir
- Víglundur Þór Þorsteinsson skýrði mynd.
Breytingaskrá skjals
Smelltu á dagsetningu eða tímasetningu til að sjá hvernig hún leit þá út.
Dagsetning/Tími | Smámynd | Víddir | Notandi | Athugasemd | |
---|---|---|---|---|---|
núverandi | 18. júlí 2007 kl. 20:43 | 583 × 418 (60 KB) | Hulda (spjall | framlög) |
Þú getur ekki yfirskrifað þessa skrá.
Skráartenglar
Eftirfarandi 4 síður nota þessa skrá: