Magnús Júlíus Jónsson (Þingeyri)
Magnús Júlíus Jónsson sjómaður á Þingeyri fæddist 1. júlí 1905 í Fagradal í Eyjum og lézt 1942 í Vesturheimi.
Foreldrar hans voru Steinunn Sigurðardóttir húsfreyja, f. 1867 og Jón Jónsson sjómaður, f. 1881.
Magnús Júlíus var í Lambhaga hjá foreldrum sínum 1920.
Hann stundaði sjómennsku, en fluttist með foreldrum sínum til Vesturheims 1924.
Kona hans var Bjarney Kristín Kristmundsdóttir.
Heimildir
- Manntal 1920.
- Landeyingabók - Austur-Landeyingar. Valgeir Sigurðsson, Ragnar Böðvarsson o.fl. Austur-Landeyjahreppur Gunnarshólma 1999.