Ingibjörg Johnsen

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 12. júní 2012 kl. 13:49 eftir Daniel (spjall | framlög) Útgáfa frá 12. júní 2012 kl. 13:49 eftir Daniel (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit
Ingibjörg Johnsen

Ingibjörg Johnsen fæddist í Vestmannaeyjum 1. júlí 1922 og lést 21. júlí 2006. Foreldrar hennar voru Margrét Marta Jónsdóttir (fædd að Kirkjulandi í Landeyjum 5. mars 1895, dáin 15. maí 1948) og Árni J. Johnsen (fæddur í Frydendal 13. október 1892, dáinn 15. apríl 1963).

Systkini Ingibjargar voru sjö og í aldursröð: Gísli fæddur í Frydendal 18. október 1916, Anna Svala fædd á sama stað 19. október 1917, Jón Hlöðver fæddur á sama stað 11. febrúar 1919, Áslaug fædd í Stakkholti 10. júní 1927 og Sigfús Jörundur fæddur í Árdal (við Hilmisgötu 5) 25. nóvember 1930. Það hús byggði faðir þeirra systkina. Guðfinnur Grétar og Jóhannes eru Imbu samfeðra, móðir þeirra hét Olga Karlsdóttir.

Ingibjörg giftist Bjarnhéðni Elíassyni frá Rangárvöllum árið 1945. Börn Ingibjargar og Bjarnhéðins eru Árni, Margrét Áslaug, Þröstur og Elías Bjarnhéðinn. Ingibjörg ólst upp í Suðurgarði en ásamt manni sínum bjó hún í Ásnesi.

Ingibjörg sem var oftast kölluð Imba Johnsen, rak blóma- og gjafavöruverslun í Eyjum í um 50 ár. Hún vann að æskulýðs- og bindindismálum með hundruðum ungmenna í Eyjum. Hún gegndi auk þess margvíslegum trúnaðarstörfum í félagsmálum og stýrði starfi templara um áratuga skeið og starfaði með Stórstúku Íslands, landssamtökum bindindismanna. Ingibjörg vann við barnavernd, tók virkan þátt í starfi kirkju og KFUM & K og sinnti þannig margs konar þjónustu í Vestmannaeyjum fyrir hugsjónir sínar.

Myndir


Heimildir

  • Morgunblaðið, 29. júlí 2006, minningargreinar.