Eyjólfur Gíslason (Bessastöðum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 25. júlí 2005 kl. 14:01 eftir Daniel (spjall | framlög) Útgáfa frá 25. júlí 2005 kl. 14:01 eftir Daniel (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Eyjólfur Gíslason fæddist 22. maí 1897 að Búastöðum í Vestmannaeyjum. Foreldrar hans voru Gísli Eyjólfsson frá Kirkjubæ og Guðrún Magnúsdóttir úr Landeyjum.

Fyrri kona Eyjólfs var Margrét Runólfsdóttir og eignuðust þau soninn Erlend, fæddan 1919. Seinni kona Eyjólfs var Guðrún Brandsdóttir og áttu þau þrjú börn; Sigurlínu (lést sem ungt barn), Gísla og Guðjón Ármann.

Eyjólfur byggði húsið Bessastaði árið 1928, littlu sunnan við æskuheimili hans, Búastöðum og þar héldu þau hjónin heimili í 45 ár. Búskapur var stór hluti af lífinu og var heyjað og haldið úti húsdýrum ásamt því að sækja björg í bú í úteyjunum.

Sjómennska

Eyjólfur var alls í 40 vertíðir sem formaður á bátum. Hann hóf ferilinn á mótorbátnum Unni árið 1919 og eftir það var hann formaður á fjölmörgum bátum. Lengst var hann á Emmu VE-219, 9 ár, en meðal annars var hann á Glaði og Hansínu. Fyrir seinni heimsstyrjöldina var hann í nokkur ár á færeyskum stórskútum. Formennsku sína endaði hann á Ísleifi, gamla, VE-63 árið 1962.

Fræðistörf

Eyjolfur hafði gríðarlegan áhuga á sögu Vestmannaeyja og safnaði að sér öllu sem hann fann um eyjarnar. Ásamt fleirum á hann stóran þátt í stofnun Byggðasafnsins og var hann í fyrstu byggðasafnsnefndinni. Hann var einstaklega fróður og áhugasamur um sögu og skrifaði bækur og greinar um margt varðandi eyjarnar.

Fjölmargar greinar skrifaði hann í Sjómannadagsblaðið, allt frá fyrstu tíð blaðsins.

Líf eftir gos

Ómetanlegur er sá skaði sem Eyjólfur varð fyrir í gosinu 1973. Hann bjó á Bessastöðum og fóru þeir einna fyrstir undir hraun eftir Kirkjubæ. Húsið fór undir hraun annan gosdaginn, 24. janúar 1973. Sökum þess náðist ekki að bjarga nærri öllum verðmætunum, einungis litlu broti var bjargað og nánast allt ritsafn Eyjólfs glataðist.

Eyjólfur varð aldrei samur eftir þessa atburði og missinn. Þau hjónin sneru ekki aftur, eins og svo margir, og settust að í garðinum nálægt vinum og ættingjum. Árið 1981 fluttust þau svo að Hrafnistu í Reykjavík.

Eyjólfur lést 7. júní 1995, 98 ára gamall.


Heimildir

  • Jón Bryngeirsson. Eyjólfur Gíslason, minningargrein. Sjómannadagsblað Vestmannaeyja 1996. bls. 82-84.