Blik 1974/Blómarósir í Herjólfsdal

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 18. maí 2010 kl. 20:34 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 18. maí 2010 kl. 20:34 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Verndaði „Blik 1974/Blómarósir í Herjólfsdal“ [edit=sysop:move=sysop])
Fara í flakk Fara í leit

Efnisyfirlit 1974


ctr

BLÓMARÓSIR Í HERJÓLFSDAL.

Hafi Blik átt þess kost, hefur það ávallt birt með mikilli ánægju myndir af Vestmannaeyískum
blómarósum, hvort sem um er að ræða eldri eða yngri myndir. Hér birtum við mynd, sem líklega er
tekin 1917 eða þar um bil. –
Frá vinstri: Sigríður Þorvarðardóttir, prentsmiðjustjóra í Rvk, síðar kona Einars Olgeirssonar
fyrrv. alþingismanns. Þórunn Sigurðardóttir, síðar eiginkona Guðmundar Vestmanns.
Theodóra Gísladóttir, gullsmiðs Lárussonar í Stakkagerði. Hún lézt 1920. Guðrún Frederiksen,
fyrri kona Brynjólfs Sigfússonar, organista og söngstjóra (sjá Blik 1967). Kristín Gísladóttir
frá Stakkagerði, síðar eiginkona Bjarna Sighvatssonar, bankastjóra og Margrét Sveinsdóttir
frá Reykjavík.
– Blómarósir þessar voru á göngu í Herjólfsdal, þegar myndin var tekin.