Blik 1947/Eyjatíðindi
- EYJATÍÐINDI
- I.
Frá skólanum
1. febr. þ.á. minntust nemendur bindindisstarfsins í skólum landsins. Skólinn hafði boðið stúkunum Báru og Sunnu að senda ræðumenn í skólann þennan dag kl. 11 f.h., því að tíminn 11–12 skyldi helgaður bindindisstarfi skólaæskunnar.
Þessir gestir heimsóttu skólann frá st. Báru nr. 2: Síra Halldór Kolbeins, frú |Lára Ólafsdóttir og Óskar Jónsson kennari. Frá st. Sunnu nr. 204 þessir gestir: Árni Johnsen kaupm., Stefán Árnason yfirlögregluþjónn og Páll Eyjólfsson forstj. Allir gestirnir fluttu stuttar en góðar ræður, sem var vel fagnað af nemendum. Þá töluðu þessir nemendur: Páll Steingrímsson III. b., Anna Tómasdóttir, II. b. og Haraldur Baldursson I. b.
Síðast talaði skólastjórinn.
Um kvöldið héldu nemendur ársfagnað Menningarfélags skólans og sáu kennararnir um öll skemmtiatriði. Til skemmtunar var upplestur, kvikmyndir og samlestur á leikþætti. Síðast var svo dansað til kl. 3 um nóttina.
Umsjónarmenn skólans eru þessir: Óskar Ketilsson, III. b., Einar Valur Bjarnason, II. b. og Guðmundur Helgason, I. b.
Hringjari skólans er Óskar Þór Sigurðsson.
Kennarar skólans hafa fest kaup á kvikmyndavél handa skólanum. Hún kostar nær 5 þúsundir króna. Þessa vél ætla þeir að láta skólann eignast án fjárframlaga frá bæjarsjóði eða ríki með því að afla sjálfir fjár til þess að greiða vélina.
21. febr. s.l. hófu nemendur skólans að grafa fyrir veggjum hins nýja skólahúss. Nemendur III. bekkjar hófu starfið, stúlkur og piltar, og unnu frá kl. 9.30, f.h. til kl. 3 e.h. Næsta dag unnu þar nemendur I. b. og þriðja daginn nemendur II. b. Skólastjóri stjórnaði verkinu og vann með nemendum. Vinnugleði ríkti í starfinu og mikill áhugi.
Góð gjöf.
Á s.l. hausti gaf Stefán Helgason Gagnfræðaskólanum smásjá. Skólinn þakkar þá velvild og hugulsemi.
- Nemendur III. bekkjar skólaárið 1946-1947
- með skólastjóra:
- Nemendur III. bekkjar skólaárið 1946-1947
Aftasta röð frá vinstri: Stefán Stefánsson, Páll Steingrímsson, Höskuldur Stefánsson,
Ragnar Sigurðsson, Jóhann G. Sigurðsson, Óskar Ketilsson, Halldór Hermannsson,
Jón Kjartansson og Óskar Þór Sigurðsson.
Miðröð frá vinstri: Svavar Lárusson, Kristín S. Þorsteinsdóttir, Bragi Einarsson,
Sveinbjörn Hermanssen, Þóra Magnúsdóttir, Ása Friðriksdóttir, Guðbjörg Jóhannsdóttir,
Jónína Nielsen og Elísabet Árnadóttir.
Fremsta röð frá vinstri: Ása Helgadóttir, Helga Rósa Scheving, Steinunn Eyjólfsdóttir,
Þorsteinn Þ. Víglundsson, Guðjóna Guðnadóttir, Ágústa Óskarsdóttir og Marta Guðnadóttir.
- II.
Sitt af hverju héðan frá 1946:
Fiskveiðarnar:
Mánuður | Útflutt 1946, kg. | Til hraðfrystihúsa 1946, kg. | Samtals kg. |
---|---|---|---|
Febrúar | 1.745.025 | 302.978 | 2.048.003 |
Marz | 2.232.534 | 736.367 | 2.968.901 |
Apríl | 3.069.705 | 1.328.178 | 4.397.883 |
Maí | 2.105.303 | 463.278 | 2.568.581 |
Júní | 82.551 | 376.239 | 458.790 |
Júlí | 10.920 | 286.116 | 297.036 |
Ágúst | 181.152 | 181.152 | |
September | 81.705 | 81.705 | |
Október | 42.850 | 42.850 | |
Nóvember | 81.790 | 81.790 | |
Desember | 58.658 | 58.658 | |
Alls | 9.246.036 kg. | 3.939.311 kg | 13.185.349 kg |
Verðmæti, ísvarinn fiskur | kr. 6.621.363,84 | ||
Verðmæti, til hraðfrystihúsa | Kr. 2.528.438,77 | ||
Verðmæti, samtals | Kr. 9.149.802,61 |
Af öllum ísfiskútflutningi landsmanna, sem fluttur var út í flutningaskipum á árunum 1942-1944, nam fiskmagnið héðan frá Eyjum sem hér segir:
Ár | % af heildar útflutningi landsmanna | Fjöldi ísfiskfarma |
---|---|---|
1942 | 16,6% | 129 |
1943 | 17,9% | 102 |
1944 | 21,7% | 125 |
- J.Þ.J.
Áfengisneyzla í Vestmannaeyjum:
Ár | Kr. |
---|---|
1945 | 1.085.626,00 |
1946 | 1.299.083,00 |
Mannfjöldi, fædd börn, fermd börn, hjónavígslur, dánir í Vestmannaeyjum Mannfjöldi::
1946 | Karlar | Konur | Alls |
---|---|---|---|
1. nóv. | 1.725 | 1.755 | 3480 |
Fædd börn:
Fæðingar | piltar | stúlkur | Samtals |
---|---|---|---|
1946 | 51 | 53 | 104 |
Fermd börn:
Fermd | stúlkur | piltar | Samtals |
---|---|---|---|
1946 | 32 | 40 | 72 |
Hjónavígslur:
1946 | 9 alls |
Dánir:
Ár | Konur | Karlar | Samtals |
---|---|---|---|
1946 | 8 | 14 | 22 |
Frá Bátaábyrgðarfélagi Vestmannaeyja
Ár | Bátafjöldi | Samtals smálestir | Samtals hestöfl | Heildarverðmæti, kr. |
---|---|---|---|---|
1946 | 71 | 5315 | 1922 | 11.847.250,00 |