Lönd-vestri

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 6. júlí 2007 kl. 15:34 eftir Daniel (spjall | framlög) Útgáfa frá 6. júlí 2007 kl. 15:34 eftir Daniel (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit
Stóru-Lönd húsið til hægri. Hraungerði til vinstri.

Húsið Lönd-vestri stóð við Landagötu 11 var byggt árið 1909 af Friðriki Svipmundssyni. Einnig nefnt Stóru-Lönd. Friðrik, sem var mikill aflamaður og sjósóknari, var kvæntur Elínu Þorsteinsdóttur og voru bæði ættuð úr Mýrdalnum. Mikil reisn og myndarskapur þótti einkenna heimilið að Löndum. Húsið fór undir hraun 1973.

Sömu hús séð frá norðri

Þegar gaus bjuggu þar hjónin Einar Indriðason og Fjóla Guðmannsdóttir og börn þeirra Stefán, Jón, Einar Fjölnir, Davíð Þór og Indriði Helgi. Þar bjó einnig ekkillinn Guðmundur S. Ágústsson og synir hans Geir, Guðmundur og Gústaf. Hjónin Rúnar Eiríkur Siggeirsson og Valgerður Sigurðardóttir bjuggu einnig í þessu stóra húsi með dóttur sín Unni.


Heimildir

  • Íbúaskrá 1. desember 1972.


Heimildir