Árdalur

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 7. október 2024 kl. 16:47 eftir Frosti (spjall | framlög) Útgáfa frá 7. október 2024 kl. 16:47 eftir Frosti (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit
Árdalur

Húsið Árdalur við Hilmisgötu 5 var byggt árið 1929. Árni J. Johnsen byggði þetta hús og bjó þar ásamt konu sinni Margréti Mörtu Jónsdóttur frá Suðurgarði í fjölda mörg ár. Óskar Þorsteinsson bóksali bjó einnig í húsinu.

Nú búa í húsinu Grétar Jónatansson og Margrét Áslaug Bjarnhéðinsdóttir, dótturdóttir Árna J. Johnsen.

Í garði Árdals er hæsta tré í Vestmannaeyjum en Grétar gróðursetti það árið 1981.


Þorsteinn Þ. Víglundsson búfræðingur og skólastjóri gróðursetti í garðinum tré fyrir Árna J. Johnsen 1930. Sama ár fæddust þau Kristín Sigríður dóttir Ingigerðar og Þorsteins og Sigfús sonur Margrétar og Árna. Þau gengu í hjónaband 1952.